** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **Þórdís Björk Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð með suðursvölum við Vogagerði 1 í Vogum á Vatnsleysuströnd. Eignin er með tveimur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu, eldhúsi með borðkrók, baðherbergi og forstofu. Í sameign er sérgeymsla íbúðar ásamt þvottahúsi og hjólageymslu með sérinngangi utan frá. Húsið hefur fengið gott viðhald og töluverðar endurbætur hafa verið framkvæmdar á undanförnum árum, meðal annars á þaki, múrverki og ytra byrði hússins auk endurbóta innan íbúðar.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 72,0 fm sem skiptist í íbúðarrými 67,8 fm og sérgeymslu 4,2 fm.Innan íbúðar eru tvö svefnherbergi, rúmgóð stofa með útgengi á suðursvalir, eldhús með borðkrók, baðherbergi og forstofa.
- Smelltu HÉR og þú færð ALLAR upplýsingar um eigninaAllar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk Davíðsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfanginu thordis@remax.is.- Smelltu HÉR og skoðaðu eignina í 3D
- Smelltu HÉR og skoðaðu eignina í 3D - án húsgagnaEndurbætur og framkvæmdir á húsi og íbúð síðustu ár:2019–2020: Járn og þakpappi endurnýjað á þaki hússins.
2021: Þakkantur endurnýjaður og húsið múrað og málað.
2021: Blöndunartæki í eldhúsi endurnýjuð.
2022: Baðinnrétting endurnýjuð.
2023: Þrír efri skápar í eldhúsi endurnýjaðir ásamt innbyggðri viftu.
2023: Ljósleiðari tengdur í húsið og allar íbúðir.
2024: Skipt um stormjárn á baðherbergisglugga og glugga yfir svalahurð.
2024: Útiljós við inngang hússins endurnýjað og gólf í hjólageymslu málað.
2024: Girðing sett upp til afmörkunar lóðar og útbúið ruslaskýli.
2025: Ofnar á baðherbergi og í stofu endurnýjaðir.
2025: Hitagrind hússins endurnýjuð.
2025: Skipt um tengla í rafmagnstöflu sameignar og í öllum íbúðum.
2026: Salernisskál endurnýjuð.
Nánari lýsing eignar:Forstofa: Með parketi á gólfi, veggföstum skóskáp og frístandandi fataskáp.
Stofa: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi og útgengi á suðursvalir.
Eldhús: Með ágætri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók við glugga. Flísar á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö.Herbergi I: Hjónaherbergi með fataskápum og parketi á gólfi. Á myndum í dag er það barnaherbergið.
Herbergi II: Með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Með ljósri innréttingu undir og við handlaug, baðkari m/sturtu og salerni. Gluggi er á baðherberginu sem veitir náttúrulega birtu og loftun. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Er í sameign þar sem hver íbúð hefur sértengi fyrir sín þvottatæki.
Sérgeymsla: Er 4,2 fm og staðsett í sameign hússins með veggföstum hillum.
Sameign: Í sameign er einnig hjólageymsla með sérinngangi utan frá.
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð í Vogum á Vatnsleysuströnd þar sem stutt er í fallega náttúru og útivistarsvæði. Vogar eru fjölskylduvænt bæjarfélag með leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu og sundlaug. Staðsetningin hentar vel þeim sem kjósa rólegt umhverfi en vilja jafnframt vera í þægilegri fjarlægð frá þjónustu og atvinnusvæðum á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk Davíðsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfanginu thordis@remax.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
- Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
- Umsýslugjald til fasteignasölu – 69.900 kr. m.vsk.