Fasteignaleitin
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
Skráð 26. júní 2026

Bergþórugata 15

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
49.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
55.300.000 kr.
Fermetraverð
1.121.704 kr./m2
Fasteignamat
48.400.000 kr.
Brunabótamat
27.700.000 kr.
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2239125
Landnúmer
102424
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Endurnýjað ca. 2012-2014 þegar húsið var hækkað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sameiginleg verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá yfirlýsingu húsfélags dags. 25.06.2026 - Stefnt er á að mála húsið að utan, ákveðið var að fresta því til næsta árs. Heildarkostnaður fyrir húsið er áætlaður um kr. 2.390.000,- með vsk. Áætluð hlutdeild íbúðar ca. kr. 570.000,-.
Gallar
Skipulag eignar er annað en á samþykktum byggingarnefndarteikningum (svefnherbergið er notað í dag sem stofa  og öfugt).
Kvöð / kvaðir
Allir eigendur í húsinu skulu hafa aðgegni að inntaksrými merktu 0003 í húsinu nr. 15 við Bergþórugötu (sjá skjal nr. 411-T-006616/2012). Í lóðarleigusamning (sjá skjal nr. 411-T-002287/2012) er almenn kvöð um hvers konar lagnir Reykjavíkurborgar eða stofnana hennar, sem þörf er á.
RE/MAX & SALVÖR ÞÓRA Lgf. & HERA BJÖRK Lgf. ( s.844-1421 / salvor@remax.is ) kynna 
Falleg og sjarmerandit 2ja herbergja, 49,3 fm, íbúð á jarðhæð merkt 00-01 með útgengi út í sameiginlegan garð í þriggja íbúða fjölbýli að Bergþórugötu 15, 101 Reykjavík. Snyrtilegt umhverfi, sameiginlegur garður, stutt er í skóla, leikskóla og allt það sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.

     - Beint aðgengi úr íbúð í sameiginlegan garð.
     - Aukin lofthæð.
     - Fallegir skrautlistar í lofti í flestum rýmum.
     - Innbyggð uppþvottavél.
     - Tengi fyrir þvottavél í baðherbergi.
     - Myndavéladyrasími

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Salvör Þóra löggiltur fasteigna- og skipasali s: 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is

Nánar um eign: Um er að ræða bjarta og fallega 2ja herbergja íbúð á jarðhæð/kjallara. Heildar birtir fermetrar eignar skv. HMS eru alls 49,3 fm og þar af er íbúðin 47,7 fm (merkt 00-01) og sérgeymsla 1,6 fm (merkt 00-02). Íbúðin samanstendur af holi/anddyri, stofu, svefnherbergi og  baðherbergi. Úr baðherbergi er farið út í huggulegan, sameiginlegan garð. Íbúðinni fylgir sérgeymsla (1,6 fm) í sameign á jarðhæð/kjallara. 

SMELLIÐ HÉR fyrir ítarlegri upplýsingar og/eða bóka tíma í skoðun ** 
SMELLIÐ HÉR til að fá sent söluyfirliti

Nánari lýsing:
Hol/anddyri: Flísar á gólfi, myndavéladyrasími, nýleg brunavarnarhurð frá Herholz út á stigagang. Hol/anddyri tengir saman önnur rými íbúðar.
Eldhús: Rúmgott og bjart með hvítri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél, flísum á milli skápa, viðar borðplötu, viftu, skrautlistum í lofti, góðum borðkrók og glugga með opnanlegu fagi. Ísskápur getur fylgt með í kaupunum. Eldhús er innangengt bæði úr holi/anddyri og svefnherbergi. 
Stofa: Björt og góð með fallegum skrautlistum í lofti og nýlegu harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi: Huggulegt og kósý með fallegum skrautlistum í lofti, hvítum fataskáp (laus) og nýlegu harðparketi á gólfi. Þaðan er farið inn í stofu og eldhús.
Baðherbergi: Rúmgott og bjart með flísum á gólfi og vegg að mestu, hvítri innréttingu með vask, upphengdu salerni, sturtu með gólfsíðu gleri, tengi fyrir þvottavél og glugga með opnanlegu fagi. Frá baðherbergi eru dyra út á hellulagð verönd í huggulegum, sameiginlegum garði.
Sér geymsla: Er í sameign á jarðhæð/kjallara við inngang íbúðar og er birt stærð skráð 1,6 fm skv. HMS.
Garður: Að bakatil er huggulegur sameiginlegur garður með góðri hellulagðri verönd og göngustíg og yfirbyggðu skyggni við sameiginlegan inngang. Garðurinn er innangengur úr baðherbergi íbúðar en einnig er aðgengi úr sameign út í garðinn.  

Framkvæmdir seljanda á eigninni:
     - Nýtt Krono Original harðparket á stofu og svefnherbergi.
     - Ný brunavarnarhurð frá Herholz út á stigagang. 
     - Gluggar hafa verið málaðir/lakkaðir að innan og utan nýlega.
     - Nýir snjallmælar komnir fyrir rafmagnið. 
     - Skolp var endurnýjað við hliðina á Bergþórugötu 15a s.l. haust sem voru greiddar að hluta til af húsfélagi Bergþórugötu 15. Skv. húsfélaginu var dren og skólp var endurnýjað að mestu fyrir um 20-30 árum.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar veita:
     Salvör Þóra, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 eða á netfangið salvor@remax.is
     Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is  

-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________

Ertu í fasteignahugleiðingum?
Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 19 ár. 
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag!
Salvör Þóra, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is
Hera Björk, lgf í síma 774-1477 eða herabjork@remax.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/03/202129.600.000 kr.36.900.000 kr.49.3 m2748.478 kr.
06/07/201722.150.000 kr.40.000.000 kr.49.3 m2811.359 kr.Nei
02/03/201213.950.000 kr.48.200.000 kr.187 m2257.754 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyjabakki 5
Opið hús:01. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Eyjabakki 5
Eyjabakki 5
109 Reykjavík
70.1 m2
Fjölbýlishús
211
854 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Víkurbraut 13
Skoða eignina Víkurbraut 13
Víkurbraut 13
230 Reykjanesbær
171 m2
Fjölbýlishús
412
350 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Túngata 13
Skoða eignina Túngata 13
Túngata 13
230 Reykjanesbær
36 m2
Fjölbýlishús
211
831 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Lynggata 2
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Lynggata 2
Lynggata 2
210 Garðabær
100.7 m2
Fjölbýlishús
312
873 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin