Fasteignaleitin
Skráð 5. ágúst 2026

Arnarvöllur 4

Atvinnuhúsn.Suðurnes/Reykjanesbær/Keflavíkurflugvöllur-235
675.7 m2
Verð
450.000.000 kr.
Fermetraverð
665.976 kr./m2
Fasteignamat
139.650.000 kr.
Brunabótamat
220.950.000 kr.
Mynd af Lilja Valþórsdóttir
Lilja Valþórsdóttir
www.prodomo.isEignalisti
Byggt 2011
Jarðhæð af 2
Garður
Fasteignanúmer
2322546
Landnúmer
212372
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Sagt í lagi
Gluggar / Gler
Sagt í lagi
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
0
Upphitun
Hitaveita
PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu atvinnuhúsnæði að Arnarvöllum 4 í Reykjanesbæ. 

Húsið er 675 fermetra stálgrindarhús byggt árið 2011, sem stendur á sameiginlegri 6674 fermetra lóð með tveimur samskonar húsum við Arnarvöll 4 í Suðurnesjabæ. Stálgrindin er frá Weckmanin í Finnlandi. Veggir eru úr stálklæðningu sem fest er á langbönd úr timbri, en ytrabyrði útveggja er klætt með gegnheilli álklæðningu. Á húsinu eru fjórar inngönguhurðir og þrjár iðnaðarhurðir.
 
Húsið skiptist í tvo hluta, fremri og aftari byggingu. Fremri byggingin er tvílyft með millilofti. Á jarðhæðinni er afgreiðslurými, en á millilofti og efri hæð er skrifstofurými ásamt eldhúsi og kaffiaðstöðu fyrir starfsmenn.
Aftari byggingin skiptist í meginatriðum í verkstæði og þvottarými ásamt geymslurými og óskráðu millilofti yfir tækjageymslu sem er inn af þvottarými.
 
Inn í afgreiðslurýmið er tvöföld rennihurð. Afgreiðslan er rúmgóð, ríflega 100 fermetrar, innaf henni eru tvö salerni. Á gólfi afgreiðslunnar er nýjar linoleum dúkflísar sem lagðar voru 2025. Gólfhit er í afgreiðslurými.
 
Innangengt er úr afgreiðslurými inn á geymslusvæði þaðan sem stigi liggur upp á efri hæð og brunahurð inn á verkstæði. Á verkstæðinu er stór innkeyrsluhurð, þar eru tvær bílalyftur ásamt tækjabúnaði til olíu- og dekkjaskipta. Á verkstæðinu eru tvö salerni og sturtuaðstaða,  auk inntaksrýmis fyrir rafmagn og hitaveitu. Öflugt rafmagnsinntak er í húsið.  Stigi upp á geymsluloft, sem nýtt er sem kaffiaðstaða fyrir verkstæðið. Gólfhiti er á verkstæði sem er með steyptu gólfi.
 
Inn af verkstæðisrými er þvottaaðstaða sem tveimur stórum iðnaðarhurðum, hvorri á sínum enda auk inngönguhurðar á endagafli hússins. Inn af þvottaaðstöðunni er tækjarými sem hýsir loftpressu, vatnsdælur og tanka fyrir hreinsiefni. Gólfhiti er í þvottarýminu auk hitablásara og ofna, en á gólfinu er ný epoxyklæðning sem lögð var 2025.
 
Skrifstofuaðstaða skiptist í milliloft og hæð yfir afgreiðslu, samtals 185 fermetra. Þar er fullbúið eldhús ásamt tveimur salernum, björtum skrifstofusal með miklu útsýni auk skrifstofu sem stúkuð er af með glereiningum. Myndavélakerfi er í húsinu sem nær yfir innra og ytra rými þess.
 
Kringum húsið er malbikuð lóð sem rúmar 80-100 bifreiðar. Þar er einnig niðurgrafin olíugildra sem þjónar öllum húsunum á lóðinni.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is 

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (10)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Straumhella 17
Skoða eignina Straumhella 17
Straumhella 17
221 Hafnarfjörður
679.7 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 154.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Kirkjubraut 37
Skoða eignina Kirkjubraut 37
Kirkjubraut 37
300 Akranes
204.4 m2
Atvinnuhúsn.
41
313 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Svölutjörn 63
Skoða eignina Svölutjörn 63
Svölutjörn 63
260 Reykjanesbær
204.4 m2
Einbýlishús
514
523 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Svölutjörn 63
106,9 aug.jpg
Skoða eignina Svölutjörn 63
Svölutjörn 63
260 Reykjanesbær
204.4 m2
Einbýlishús
514
523 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin