Ástþór Reynir, löggiltur fasteignasali og Ragna Steinunn, aðstoðarmaður fasteignasala hjá RE/MAX, kynna í sölu vel staðsett einbýlishús með aukaíbúð á sér fastanúmeri að Básenda 10, 108 Reykjavík.
Eignin er samtals 245,9 fm samkvæmt HMS og skiptist í 168,3 fm aðaleign, þar af 32 fm bílskúr og 32 fm óskráðum kjallara undir bílskúr, ásamt 77,6 fm aukaíbúð með sérinngangi á sér fastanúmeri.
Aðaleign:
Flísalögð forstofa, rúmgott eldhús með fallegri innréttingu, björt stofa með fallegum gluggum og útgengi út í garð, gestasalerni og herbergi/skrifstofa á neðri hæð. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, þar af hjónaherbergi með fataherbergi og útgengi á svalir, baðherbergi og þvottahús.
Útisvæði:
Stór og skjólgóð verönd með heitum potti, steyptum pizzaofni. Köld geymsla er við veröndina. Undir bílskúr er einnig óskráð rými með fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Aukaíbúð:
3 herbergja íbúð með sérinngangi, stofu, eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, sérþvottahúsi og geymslu-/fatarými.
Forstofa: Sérinngangur. Flísar á gólfi við inngang. Inn af forstofu tekur við bjartur gangur með fataskápum.
Gangur: Rúmgóður gangur með góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi og falleg lýsing.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum sem veita góða birtu. Fallegt harðparket á gólfi. Verið er að útbúa hurð úr stofu út á sérafnotasvæði eignarinnar sem mun skapa skemmtilega tengingu við útirými.
Eldhús: Nýlegt og smekklega endurnýjað eldhús með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. innbyggð uppþvottavél. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum fataskápum. Harðparket á gólfi og gluggi sem veitir góða birtu.
Svefnherbergi II: Bjart og notalegt herbergi með fataskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Glæsilega endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Vegghengt salerni, sturta með glervegg, falleg innrétting með handlaug ásamt góðu skápaplássi og spegli.
Þvottahús: Sérþvottahús innan eignar með vaski, borðplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla/Fatarými: Gott geymslu- og fatarými með hillukerfi sem nýtist vel fyrir fatnað og annað sem þarf að geyma.
Um er að ræða snyrtilega 3 herbergja íbúð með sérinngangi og sérafnotasvæði.
Athygli er vakin á því að sumar myndir af stofu hafa verið stafrænt útfærðar með hjálp gervigreindar til að sýna fyrirhugað útgengi úr stofu á sérafnotasvæði. Hurð er nú í smíðum og verður sett upp samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum.
Um er að ræða vel staðsett einbýlishús með aukaíbúð á sér fastanúmeri, glæsilegri útiaðstöðu og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og útivistarsvæði. Eign sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Ragna Steinunn Arnarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasali í síma 858-9494 eða ragna@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.