Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Björt og rúmgóð fjögurra herbergja íbúð á frábærum stað í góðu fjölbýlishúsi í Löndunum í Fossvogi að Gautlandi 15, 108, Reykjavík. Eignin telur 101,8fm og er á 2. hæð. Skipulag telur, Forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi, ásamt alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi á rúmgóðar svalir ásamt sér geymslu í sameign.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er parketlögð og með rúmgóðum fataskápum.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu, aðstöðu fyrir þvottavél & Þurrkara. Flísar á gólfi. Þvottahúsið er staðsett þar sem inngangur að eldhúsi var á upprunalegu teikningunum.
Eldhús er parketlagt og opið við stofu sem mynda alrými eignarinnar. Falleg sérsmíðuð innrétting með góðri eyju, uppþvottavél, ísskápur, spanhelluborð og Bakarofn er í vinnuhæð.
Stofa og Borðstofa er rúmgóð og björt með fallegum gluggum. Úr stofu er útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa í suð-vestur.
Svefnherbergi I parketlagt.
Svefnherbergi II parketlagt.
Hjónaherbergi er parketlagt og með rúmgóðum fataskápum, nýtt sem barnaherbergi í dag.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu. Innrétting með hvítum vask, spegla skápar með góðu skápaplássi.
Eignin hefur fengið gott viðhald síðustu ár.
Innanhúss:
- 2019 Ný útidyrahurð
- 2020 Gólfefni endurnýjuð, baðherbergi endurnýjað og gólfhiti settur, nýtt sérsmíðað eldhús, allir skápar nýjir og sérsmíðaðir, nýjar hurðar settar í öll herbergi, rafmagnsrofar og tenglar endurnýjaðir, þvottahús útbúið með vaski og sérsmíðaðri innréttingu, allir ofnar í íbúðinni endurnýjaðir.
Utanhúss:
- 2015 Skólplagnir blokkarinnar voru fóðraðar.
- 2018 Skipt um glugga á norðurhlið hússins.
- 2022 Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu, þak og þakrennur hússins voru endurnýjuð, ný skilrúm og handrið sett á milli íbúða á svölum, allt gler í gluggum á suðurhlið endurnýjað, sameignarhurðar endurnýjaðar við hjólageymslu og bakútgang.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, miðsvæðis í borginni á grónum stað þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, fallegar gönguleiðir í Fossvogsdalnum, verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.