LIND fasteignasala og Herdís Sölvína Jónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstaklega fallega 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með útsýni ásamt stæði í bílageymslu. Góð staðsetning í barnvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslunarkjarna, sundlaug, skóla og leikskóla. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í ósnertri náttúrunni eru í næsta nágrenni eins og t.d. Heiðmörk og Vífilstaðavatn.Eignin skiptist í forstofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og geymsluAllar innréttingar eru sérsmíðaðar hjá Gerher í Litháen. Um er að ræða vandaða framleiðslu úr harðplasti sem er sérstaklega endingagott og slitsterkt. Borðplötur er Quartz Lema White, 20mm. bæði í eldhúsi og baðherbergi.
Húsið er steinsteypt, einangrað og klædd að utan með áli, fyrir utan kjallara sem er með sjónsteypu að utan og einangraður að innan. Snjóbræðsla er lögð í helstu gönguleiðum utan við hús.Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu ásamt sér geymslu í kjallara.
Stærð eignar er 95,6 fm. skv. FMR. en þar af er geymsla í kjallara 7,8 fm.Allar nánari upplýsingar veitir Herdís Sölvína Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 862 0880 eða herdis@fastlind.is
Smelltu hér og fáðu söluyfirlit strax.Nánari lýsing:
Forstofa: Er flísalögð með fataskáp og hengi.
Eldhús: Er með parketlögðu gólfi og fallegri ljósgrárri innréttingu með Quartz Lema White steini á borðum, góðri eyju og AEG eldhústækjum.
Stofa: Er parketlögð, björt með stórum gluggum, útsýni er á milli bygginga. Gengið er út á suðvestur svalir.
Baðherbergi: Er með flísum á gólfi og veggjum, ljósgrárri innréttingu, speglaskápum og Quartz Lema White steini ásamt upphengdu salerni og sturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara og skápar þar í kring.
Hjónaherbergi I: Er parketlagt með fataskáp.
Svefnherbergi II: Er parketlagt með fataskáp.
Svefnherbergi III: Er parketlagt með fataskáp
Svalir: Eru 4,7 fm. og snúa í suðurvestur.
Geymsla: Er 7,8 fm. í kjallara með máluðu gólfi og er beint fyrir aftan bílastæði nr. 305
Bílastæði: Er merkt nr. 305 og leiguhleðslustöð frá ON fylgir stæðinu.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 11 samstarfsaðilum:
Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma, Sýn og Securitas.
** Frítt söluverðmat á þinni hjá Herdís Sölvína Jónsdóttir, sími 862 0880 / herdis@fastlind.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.