Hilmar Arnarson, aðstoðarmaður fasteignasala og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali ásamt RE/MAX kynna:
Bjarta og mikið endurnýjaða, þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með góðum sólpalli sem snýr í suðvestur, í Salahverfinu, nánar tiltekið Blásalir 19, 201 Kópavogur.
Birt stærð eignar samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 97.0 fm en þar af er geymsla skráð 7.0 fm.* Nýtt parket frá Birgisson* Nýjar innihurðar frá Birgisson
* Ný eldhúsinnrétting ásamt Quartz-stein frá steinprýði
* Eignin er öll nýmáluð og getur verið laus við kaupsamning.
Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, hilmar@remax.is, sími 823-3673
Nánari lýsing eignar:
Forstofan komið er inn í flísalagða forstofu um sérinngang. Stór fataskápur með speglahurðum er í forstofu.
Eldhúsið er á hægri hönd þegar gengið er inn í alrými. Dökk eldhúsinnrétting með fallegum brons höldum. Quarts-steinn frá Steinprýði, Carrara White Marble 20 mm á borðum. Undirlímdur vaskur ásamt blöndunartæki. Innbyggð uppþvottavél frá AEG. Ofn í vinnuhæð og helluborð í eldhúseyju frá Samsung. Innbyggður ísskápur fylgir frá Samsung. LED lýsing er undir efri skápum og í eyju. Nýtt parket á gólfum frá Birgisson.
Stofa og borðstofa er í björtu og opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi. Stórir gluggar og hurð með útgengi út á suðvestur pall með skjólvegg.
Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og góðum innbyggðum fataskáp. Stór gluggi sem snýr út í gróinn garð.
Barnaherbergið er með parketi á gólfi og góðum innbyggðum fataskáp. Stór gluggi sem snýr út í gróinn garð.
Baðherbergið er flísað í hólf og gólf. Inni á baði er bæði flísalögð sturta og baðkar í sitthvorum endanum ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Góð vegghengd innrétting með speglaskáp ásamt handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er inni á baði fyrir ofan baðkar sem snýr út í garð.
Geymsla 7 fm geymsla fylgir íbúðinni og er staðsett við hlið íbúðar. Gengið er inn í hana að utan um sérinngang. Góður gluggi er í geymslunni.
Virkilega smekkleg og björt eign á þessum vinsæla stað í Salahverfinu, í göngufæri við leikskóla, grunnskóla, líkamsrækt og Salalaug ásamt íþróttafélaginu Gerplu.*Ath. Eignin er tóm, en notast var við aðstoð gervigreindar á myndum með húsgögnum.
Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, hilmar@remax.is sími 823-3673, aðstoðarmaður fasteignasala.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.