Andri Freyr Halldórsson lgfs. & Lind fasteignasala kynna með stolti:
Vel skipulagt & fallegt einbýlishús í vinsælu hverfi á Álftanesi. Húsið er með þremur til svefnherbergjum og er á einni hæð. Stór og falleg timburverönd.
Stórt og rúmgott bílastæði. Samtals 131.5 fm. Húsinu fylgir byggingaréttur á bílskúr, það fylgja tvær teikningar samþykktar. Önnur teikningin er 35m2 og hin 45m2.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 131,5 fm. Virkilega sjarmerandi hús sem vert er að skoða.
Fasteignamat skv. FMR er 108.400.000
*Fasteignamat skv. fmr fyrir árið 2027 er 111.050.000 kr.*
*Húsinu fylgir byggingaréttur á bílskúr, það fylgja tvær teikningar samþykktar. Önnur teikningin er 35m2 og hin 45m2.*
*Einbýli á einni hæð.
*Nýlega endurnýjað baðherbergi.
*Nýleg og falleg timburverönd um 95.fm.
*Nýlega endurnýjuð gólfefni & hurðar í herbergjum.
*Stór eignarlóð 808.fm
*Góð viðhaldssaga.
Forstofa: með flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa: í björtu alrými. -Stórir og bjartir gluggar.
-Útgengt er úr stofu út á glæsilega 95.fm timburverönd – tilvalið fyrir notalegar stundir utandyra.
Eldhús: er bjart og aflokað að hluta með eyju og borðkrók. Falleg eikar innrétting frá GKS. Eldhús er rúmgott með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp, ofn er í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi 1: með nýlegu harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi 2: með nýlegu harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 3: er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi og er um 12.fm með nýlegu harðparketi á gólfi.
-Möguleiki á 4. svefnherberginu þar sem sjónvarpsherbergi var breytt í eitt rými á sínum tíma.
Baðherbergi: nýlega er endurnýjað (2023) með fallegum ljósum flísum í hólf & gólf. -Walk-in sturta með glerþili, upphengt salerni og snyrtilega innréttingu, handklæðaofni og glugga.
Þvottahús: með tengi fyrir skolvask, stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Bílskúrsréttur: húsinu fylgir byggingaréttur á bílskúr, það fylgja tvær teikningar samþykktar. Önnur teikningin er 35m2 og hin 45m2
Geymsla: 4fm. geymsla er innan íbúðar.
Geymsluskúr/verkfæraskúr: einangraður 12m2. Smíðaður 2017.
Bílastæði: mjög rúmgott bílaplan.
Lóð: fallega og vel hirt 808 fm. lóð,
- Miklir möguleikar
Álftanes er eftirsótt og fjölskylduvænt hverfi sem nýtur einstakrar náttúrufegurðar og rólegs andrúmslofts. Svæðið er umkringt fallegum strandlengjum, gönguleiðum og náttúruperlum sem bjóða upp á fjölbreytta útivist allt árið. Sterkt samfélag einkennir Álftanes þar sem þjónusta, skólar og íþróttaaðstaða eru í næsta nágrenni. Stutt og öruggt göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús, sem gerir svæðið sérstaklega hentugt fyrir fjölskyldur á öllum aldri.
Viðhald síðastliðna ára skv. seljanda:
Húsið hefur fengið gott viðhald síðastliðin ár.
Endurnýjaður Þakkantur og einnig kaldur geymsluskúr um 8fm. bætt við 2023.
Málun á þaki 2026, þak er í góðu ástandi.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
*Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.