Nýtt á skrá! Opið hús - Veghús 5 í Reykjavík - mánudaginn 30. júní klukkan 18:00 - 18:30
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu 125,4 fermetra 4-5 herbergja fjölskylduíbúð með góðum svölum til suðurs í steinsteyptu fjölbýli við Veghús 5 í Reykjavík. Íbúðin er með rúmgóðri stofu með útgengi á svalir. Gengið er inn í sólstofu frá stofu. Auk þess er eldhús stórt en það var stækkað á kostnað herbergis á sínum tíma. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla er 4,8 fermetrar og er staðsett á geymslugangi ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Snyrtileg og falleg gróin lóð og sameiginleg malbikuð bílastæði fyrir framan hús. Leiktæki í bakgarði.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Húsahverfi í Reykjavík. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum. Auk þess er stutt í sundlaug, skíðabrekku og íþróttamiðstöðina í Egilshöll og íþróttasvæði Fjölnis við Dalhús.
Nánari lýsing: Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum. Stofa: Er stór, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs inn í bakgarð hússins. Útgengi á svalir. Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins. Sólskáli: Gengið er í sólskála frá stofu sem snýr til suðurs. Eldhús: Er rúmgott (var stækkað á kostnað herbergis) og með flísum á gólfi. Gott rými fyrir eldhúsborð/borðstofuborð innan eldhúss. Hvít/beyki eldhúsinnrétting með Whirlpool bakaraofni, Siemens helluborði og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggar til norðurs með fallegu útsýni út á sundin og til fjalla. Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta. Innrétting við vask og skápar. Upphengt salerni, gluggi til vesturs og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergi I: Með plastparketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs. Svefnherbergi II: Með plastparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs. Svefnherbergi III: Með plastparketi á gólfi og glugga til vesturs.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 4,8 fermetrar að stærð. Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins. Útgengi á framlóð hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir: Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.