Fasteignaleitin
Skráð 9. júní 2026

Björkurstekkur 34

ParhúsSuðurland/Selfoss-800
178.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
559.978 kr./m2
Fasteignamat
103.750.000 kr.
Brunabótamat
101.050.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2514592
Landnúmer
231632
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt (2022)
Raflagnir
Upprunalegt (2022)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2022)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2022)
Þak
Upprunalegt (2022)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita og gólfhitakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallega innréttað og vel skipulagt 5 herbergja parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr og 668 m2 lóð til sérafnota við Björkurstekk 34 á Selfossi. Um er að ræða nýlegt og vandað parhús sem skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, rúmgott alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu ásamt innangengum bílskúr í gegn um þvottahús. Í öllum rýmum er dimmanleg lýsing og gólfhiti sem hvoru tveggja má stýra með snjalltæki ásamt netkerfi með lofttengdum aðgangspunktum. Um er að ræða einstaklega vel búið og tæknivætt fjölskylduhús þar sem gæði, hönnun og nútímaleg þægindi fara saman. Parhúsið Björkurstekkur nr. 34 og 36  stendur á 1.337 m2 lóð sem skiptist til helminga milli eininga með rúmgóðum garði og góðu bílaplani, stæði er fyrir tvo bíla. Hverfið er nýlegt, vinsælt og afar barnvænt og afar stutt er í nýjan grunnskóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og aðra þjónustu. Falleg útivistarsvæði og gönguleiðir eru í næsta nágrenni og góð tenging við helstu samgönguleiðir. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í síma: 856-5858 eða email: margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***

Birt heildarstærð eignar samkvæmt HMS er 178,4 m2, þar af er íbúðarrými 141,6 m2 og bílskúr 36,8 m2. Lóðin í kring, til afnota, er c.a 490 m2.

Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með góðu skápaplássi og fallegu vinylparketi á gólfi.
Gestasnyrting er inn af forstofu með vegghengdu salerni og fallegri innréttingu.
Alrými er einstaklega bjart og opið með góðri lofthæð þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samliggjandi og fjölskylduvænt rými. Stórir gluggar tryggja góða birtu og tengingu við garðinn.
Eldhús er sérlega glæsilegt með fallegri innréttingu frá KVIK og CLT viðarborðplötu. Spanhelluborð er staðsett í eyju með innbyggðum háfi. Innbyggður ísskápur frá Siemens ásamt bakaraofni og örbylgjuofni frá Samsung. Extra djúpir skápar í eyju skapa mikið geymslupláss. 
Stofa og borðstofa eru samliggjandi með góðu plássi fyrir bæði setu- og borðstofu og útgengi út í garð.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi I, II og III eru öll af góðri stærð með möguleika á fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu frá KVIK, steinvaski, vegghengdu salerni og inngengri sturtu. Sjálfvirk rakastýrð vifta sér um loftskipti. 
Þvottahús er sér rými innan íbúðar með rúmgóðri innréttinu með góðu vinnuplássi og tengingum fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr er innbyggður, 36,8 m2 að stærð, með rafknúnum hurðaopnara sem hægt er að stjórna með snjallsímaforriti.
Innkeyrsla er rúmgóð og rúmar auðveldlega tvo eða fleiri bíla og uppsett bílhleðslustöð er við bílsskúr.
Lóðin er um 490 m2 í kring um húsið að meðtaldri innkeyrslu þar sem vel er hægt að setja stóran sólpall og búið er að leggja lögn fyrir heitan pott.

** HVERS VIRÐI ER ÞÍN EIGN? SMELLTU HÉR **

Eiginleikar eignar:
-  Gólfhiti um allt hús frá Danfoss með snjallstýringu í appi. 
-  Innfelld dimmanleg LED loftljós í öllum herbergjum (nema bílskúr). 
-  Shelly snjallljósastýring fyrir allt húsið. 
-  Brafa snjalllás með fingrafaralesara, PIN-númeri eða korti. 
-  Unifi netkerfi með lofttengdum aðgangspunktum og tölvuskáp í bílskúr. 
-  Dyrabjalla með innbyggðri myndavél og undirbúningur fyrir öryggismyndavélar. 
-  Allar innréttingar frá KVIK. 
-  Blöndunartæki frá GROHE (að undanskildu eldhúsi). 
-  Flísar frá Birgisson og vinylparket frá Parka. 
-  Rúmgóður garður.
-  Rör lagt í innkeyrslu fyrir mögulegan heitan pott. 
-  Steypt sorptunnuskýli. 

Staðsetning
Björkurstekkur er hluti af nýlegu og eftirsóttu hverfi á Selfossi. Hverfið her einstaklega fjölskyldu og barnvænt þar sem stutt er í nýjan grunnskóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, verslanir og aðra þjónustu. Falleg útivistarsvæði og gönguleiðir eru í næsta nágrenni og góð tenging við helstu samgönguleiðir.

FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/05/20227.800.000 kr.51.600.000 kr.178.4 m2289.237 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2022
36.8 m2
Fasteignanúmer
2514592
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
18.050.000 kr.

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjafnarvellir 15
Bílskúr
Skoða eignina Sjafnarvellir 15
Sjafnarvellir 15
230 Reykjanesbær
182.7 m2
Parhús
624
547 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 509
Opið hús:13. júní kl 12:00-12:30
Laugaborg íbúð 509
105 Reykjavík
112.3 m2
Fjölbýlishús
312
1023 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 416
Opið hús:13. júní kl 12:00-12:30
Laugaborg íbúð 416
105 Reykjavík
94.3 m2
Fjölbýlishús
312
996 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 409
Opið hús:13. júní kl 12:00-12:30
Laugaborg íbúð 409
105 Reykjavík
98.1 m2
Fjölbýlishús
312
989 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin