Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Völusteinsstræti 20 Bolungarvík. Stórt og fallegt einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr og stórum garði. Á efri hæð er aðalinngangur, forstofa, gangur, stofa og borðstofa, eldhús, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Á neðri hæð er þvottahús, salerni og geymsl. Bílskúr er skráður 30,7 m² að stærð, inn af bílskúr er um það bil 60 m² óinnréttað rými sem nýtist í dag sem geymsla og gefur marga möguleika á nýtingu.Nánari lýsing:Aðalinngangur á efri hæð,
forstofa er flísalögð, hiti í gólfi.
Gangur með parketi.
Stór opin
stofa og borðstofa með parketi á gólfi, útgengt út á stóran sólpall úr borðstofu.
Eldhús var endurnýjað í kringum 2010, falleg innrétting með eikaráferð, flísar gólfi, háfur, helluborð og veggofn.
Gengið upp nokkur þrep upp í
svefnálmu, parket á gólfi og hiti í öllum gólfum þar.
Fjögur svefnherbergi, hjónaherbergi með stærri fataskáp og þrjú minni herbergi, parket og hiti í gólfum.
Baðherbergi uppgert, flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og góð "walk-in" sturta.
Úr gangi við forstofu er flísalagður stigi niður á
neðri hæð, þar sem er 29 m² rými þar sem er flísalagt
þvottahús og salerni,
geymsla fyrir innan þvottahús.
Sérútgangur úr þvottahúsi út í garð.
Bílskúr er 30,9 m² samkvæmt fasteignaskrá, heitt og kalt vatn, steypt gólf og nýlegt bílskúrshurð með rafmagnsopnun.
Innangengt úr bílskúr inn í 60 m²
óinnréttað rými á neðri hæð sem er nú nýtt sem geymsla aðallega. Möguleiki á að innrétta rýmið og nýta sem hluti af íveruplássi.
Stór
garður og hellulagt bílastæði.
Framkvæmdasaga seljenda:
Loftaklæðning í stofu endurnýjuð 2017.
Bílskúrshurð og inngönguhurð endurnýjuð í bílskúr, hluti glers og opnanlegra faga í gluggum 2018, aðallega norðurgafl.
Svefnálma og bað 2019, gólfefni, hiti í gólfi, innihurðir og bað endurnýjað. Rafmagnsdósir og rofar endurnýjaðir þar á sama tíma.