Borg fasteignasala kynnir:
Einstök 2ja herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum, glæsilegum sólskála, stórum suðursvölum og stæði í lokaðri bílgeymslu. EIgnin er á þriðju hæð í lyftuhúsi. Skráð alls 89,9 fm.
Glæsileg og vel skipulögð 89,9 fm íbúð, þar sem auk þess nýtist um 20 fm flísalagður sólskáli, sem ekki er skráður í birtum fermetrum eignarinnar. Sólskálinn tengir saman íbúðina og rúmgóðar um 20 fm suður-svalir. Eignin skiptist í: forstofu, gestasalerni, eldhús, stofu og borðstofu í opnu alrými, rúmgott svefnherbergi með fataherbergi og sér baðherbergi, sérgeymslu, sameiginlega hjóla- og vagnageymslu ásamt sérmerktu stæði í lokaðri bílgeymslu.
Komið er inn í forstofu með góðum fataskápum. Gestasalerni er inn af forstofu og þar er þvottaaðstaða með skápum fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhúsið er glæsilegt með vönduðum innréttingum úr ljósri eik og hvítum skápum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með.
Stofa og borðstofa mynda rúmgott og einstaklega bjart alrými með stórum gluggum. Þaðan er gengið út í fallegan flísalagðan sólskála sem nýtist sem frábær viðbót við íbúðina stóran hluta ársins. Frá sólskálanum er útgengt á rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni og góðri aðstöðu.
Svefnherbergið er rúmgott með fataherbergi og inn af því er glæsilegt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og fallegri innréttingu.
Ljóst parket er á öllum meginrýmum en flísar á baðherbergjum.
Hér er um að ræða afar glæsilega eign þar sem birtan, stóra alrýmið, sólskálinn, rúmgóðar svalir, tvö baðherbergi og stæði í lokaðri bílgeymslu mynda einstaka heild á eftirsóttum stað í vesturbænum.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 788 9030, ulfar@fastborg.is