eignasala.is kynnir eignina Grænaborg 6, 190 Vogar, nánar tiltekið eign merkt 02-05, fastanúmer 251-6003 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
EIGNASALA.IS KYNNIR – BJARTA OG VEL SKIPULAGÐA 92,2 M² FJÖGURRA HERBERGJA ÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ MEÐ ÞREMUR SVEFNHERBERGJUM, SÉRINNGANGI OG SUÐURSVÖLUM Í NÝLEGU FJÖLBÝLISHÚSI Í VOGUM.
Um er að ræða fallega fjölskylduíbúð á efri hæð í tveggja hæða steinsteyptu fjölbýlishúsi, byggðu árið 2023. Íbúðin er öll á einni hæð og skiptist í forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og bjart alrými með eldhúsi og stofu. Úr stofu er gengið út á 4,9 m² suðursvalir.
NÁNARI LÝSING
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur og fatahengi. Hol: Parketlagt hol sem tengir saman rými íbúðarinnar. Eldhús: Falleg hvít innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Parket á gólfi og opið inn í stofu og borðstofu. Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með parketi á gólfi og útgengi á suðursvalir. Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi og fataskáp. Svefnherbergi II og III: Tvö góð herbergi með parketi á gólfum. Baðherbergi: Flísar á gólfi og í sturtu, snyrtileg innrétting við handlaug, upphengt salerni, handklæðaofn og rúmgóð sturta án þröskulds. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Svalir: 4,9 m² svalir sem snúa í suður.
Húsið: Steinsteypt tveggja hæða fjölbýlishús með 12 íbúðum, byggt árið 2023 og klætt að utan með álklæðningu.
HELSTU KOSTIR
92,2 m² – fjögurra herbergja íbúð. Þrjú svefnherbergi. Efsta hæð með sérinngangi. Byggt árið 2023. 4,9 m² suðursvalir. Bjart og opið alrými. Hvít eldhúsinnrétting. Rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu
Allt á einni hæð. Nýlegt og viðhaldslétt hús
Fjölskylduvænt umhverfi í Vogum
Falleg og vel skipulögð fjölskylduíbúð þar sem sérinngangur, þrjú svefnherbergi, bjart alrými og suðursvalir eru meðal helstu kosta.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ FINNUM TÍMA SEM HENTAR ÞÉR!
Júlli – 899 0555 | Jói – 864 9677, Bjarni Fannar – 773 0397 | Reynir – 777 0915, Skúli – 898 7209
EIGNASALA.IS – Hafnargata 90a, Keflavík
tölvupóstur julli@eignasala.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.