KRISTÍN EINARS. lögg. fast. & VALA GEORGS. lögg.fast. og DOMUSNOVA KYNNA EINKAR FALLEGA EFRI SÉRHÆÐ MEÐ SÉRINNGANGI Í 3JA ÍBÚÐAHÚSI Á FRÁBÆRUM STAÐ Í HLÍÐAHVERFINU.
Samkv. HMS er eignin alls 201,2 fm. þar af er bílskúrinn 26,1fm.
4 SVEFNHERBERGI, BÍLSKÚR INNRÉTTAÐUR SEM STUDIOÍBÚÐ.
EIGN SEM HEFUR VERIÐ MIKIÐ ENDURNÝJUÐ BÆÐI UTANHÚSS OG INNAN.Íbúðin skiptist í anddyri, hol, stóra stofu, borðstofu eldhús, 4 svefnherbergi þar af hjónaherbergi með sérinngangi og sérbaðherbergi,2 baðherbergi, búr og þvottahús auk geymslu í kjallara.Nánari lýsing: Forstofa flísalagt gólf. Skóskápur. Teppalagður stigi.
Tveir stórir síðir gluggar til vesturs. Á stigapalli er stórir fataskápar. Flísar og parket á gólfi.Á vinstri hönd er flísalagður
gangur með aðgengi í þvottaherbergi, búr, baðherbergi með sturtu,
2 rúmgóðum svefnherbergjum.Þvottaherbergið. Innréttingar og skápar. endurnýjaðir 2015. Upphengdur handklæðaofn. Flísalagt á milli borðs og efri skápa.
Gluggi með opnanlegu fagi. Flísar á gólfi.
Búr með miklu skápaplássi og borðplötu. Flísar á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa. Gluggi með opnanlegu fagi.
Svefnherbergi með tveimur gluggum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi með stórum glugga og útgengi á suðursvalir. Parket á gólfi.
Úr
holi er hægt að ganga bæði inn í eldhús og alrými.
Eldhús afar rúmgott með miklu skápa og borðplássi. Allar framhliðar á innréttingu voru sprautulakkaðar og borðplötur slípaðar fyrir nokkrum árum.
SMEG gaseldavél. Flísar á gólfi. Hægt er ganga úr eldhúsi í borðstofu og alrými.
Borðstofan er vel staðsett við enda eldhúsins með stórum glugga.
Stofan er björt og falleg með stórum gluggum til suðurs og vesturs. Parket á gólfi. Úr stofunni er gengið út á rúmgóðar suðursvalir sem voru
endurnýjaðar 2019.
Innaf stofu er
herbergi sem notað er í dag sem bókaherbergi en auðvelt að innrétta sem svefnherbergi.
Frá stofu er gengið er inn
svefnherbergisgang hjóna sem er með góðum skápum með speglahurðum að svefnherberginu og baðherberginu.
Baðherbergið var allt endurnýjað 2019, flísalagt í hólf og gólf, góðar innréttingar og nuddbaðkar. Gluggi með opnanlegu fagi.
Hjónaherbergi rúmgott, með parketi á gólfi.
Geymslur í kjallara samtals 8 fm.
Studioíbúð í bílskúr var gerð 2014. Góðar innréttingar.
Verklegar framkvæmdir á sameign:
2019- Rafmagnstafla endurnýjuð.
2021- Endurnýjaðar flasningar á þakkanti og þak yfirfarið
2021- Húsið múrviðgert og málað
2024- Skolplagnir endurnýjaðar undir húsi og milli hæða.
2026- Skipt út hitalögn í innkeyrslunni og múrhúðað þakið á bílskúrnum.Frábær fjölskyldueign í grónu hverfi og einstaklega vel skipulögð.
Afar góð staðsetning, stutt í alla þjónustu, verslanir og menntastofnanir.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Einars. lögg.fasteignasali s: 894-3003 og Vala Georgs. lögg. fasteignasali s. 695-0015, vala@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.