-Frábær staðsetning í miðbænum
-Sér inngangur
-Eignarlóð
-Verönd í sól- og skjólríkum garðiHæðin er 62,1 fm samkvæmt HMS, þar af er geymsla á lóð sem býður upp á möguleika.
Hluti af íbúðinni er undir súð en með góða lofthæð.
Parket er á gólfum í alrými og svefnherbergjum, flísalagt á baðherbergi og teppalagt upp stiga.
Eignin hefur fengið gott viðhald bæði að innan og utan í gegnum árin:
-Eldhús tekið í gegn 2023
-Skipt um sturtubotn á baðherbergi 2025
-Viðbygging klædd 2020 og settur timburpallur
-Skólp endurnýjað 2021
-Gluggar endurnýjaðir að hluta
-Vatnslagnir einnig
-Skipt um þakjárn og timbur að hluta og nýjar þakrennur 2019
-Steinn múrviðgerður
Falleg risíbúð í tvíbýli í miðbænum sem vert er að gefa góðan gaum.
Nánari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.isNánari lýsing:
Gengið er inn í
forstofu inn um snotra viðbyggingu með timburverönd.
Á vinstri hönd er búið að koma fyrir tengi fyrir
þvottavél og á hægri hönd er gengið upp teppalagðan
stiga sem liggja að alrými.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi. Útbúið vaskinnréttingu, handklæðaofni, sturtu með nýlegum sturtubotni og upphengdu salerni. Lýsing er fyrir spegil fyrir ofan vaskinnréttingu.
Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu og panel á veggjum milli efri og neðri skápa. Bakaraofn, helluborð, háfur og gott skápapláss. Tekið í gegn 2023.
Stofa og eldhús flæða saman og er rýmið mjög bjart og opið með gluggum á þremur hliðum.
Tvö svefnherbergi, annað er á vinstri hönd þegar gengið er upp stigann og hitt inn af alrými.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.