LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega, bjarta og vel skipulagða 3ja herb. endaíbúð á þriðju hæð með sérinngangi af svölum við Birkiholt 1 á Álftanesi með fallegu útsýni. Eignin er skráð skv. HMS alls 94,1m2. þar af er sérgeymsla 6,1 m2. Sér merkt bílastæði fylgir eigninni.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, sérgeymslu ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu í sameign.
2020 var eignin mikið endurnýjuð
* Eldhúsið endurnýjað með innréttingum frá HTH
* Baðinnrétting frá HTH endurnýjuð
* Innihurðar endurnýjaðar með hurðum frá Parka
* Parket endurnýjað
Nánari lýsing eignar
Forstofa með góðu skápaplássi, flísar á gólfi, stór gluggi sem hleypir birtu inn í rýmið.
Gangur/hol bjart með parketi á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu með stórri eyju sem hægt er að sitja við, mikið skápapláss, innbyggð uppþvottavél, helluborð, góð vinnuaðstaða, parket á gólfi.
Stofan er mjög rúmgóð og björt með parket á gólfi, útgengt út á rúmgóðar svalir til suðurs , með einstaklega fallegu útsýni til fjalla og yfir höfuðborgina, fallegur horngluggi með útsýni yfir Bessastaði,
Hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp með nýju innvolsi, parket á gólfi.
Barnaherbergið er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, góð innrétting með efri og neðri skápum, og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús með skolvaski, þvottasnúrur, hillur, flísar á gólfi.
Geymsla innan sameignar á jarðhæð, skráð 6,1 m2.
Hleðslustaur á lóð þar sem að hægt er að hlaða tvo bíla í einu, og búið er að leggja fyrir öðrum.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg á jarðhæð. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaugina og á golfvöllinn. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is