Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Vesturgata 50

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
85.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
954.545 kr./m2
Brunabótamat
42.450.000 kr.
Byggt 1962
3. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20002911
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignin er seld með fyrirvara

Aldir Fasteignir kynnir:

Fallega og sjarmerandi 85,8m². 3ja herbergja íbúð við Vesturgötuna. Íbúðin er á þriðju hæð í fimm hæða lyftuhúsi, suðursvalir. Fallegt útsýni til norðurs frá eldhúsi og svefnherbergi yfir Akrafjall, Esjuna og gömlu höfnina í Reykjavík. Íbúðin var öll smekklega endurnýjuð árið 2005. Fallegt eikarparket er á íbúðinni ásamt fallegum loftlistum sem ramma inn umgjörð íbúðarinnar.  7 bílastæði fyrir framan sem tilheyra húsinu.   Eign með skemmtilegan karakter, rúmgóð og björt rými, suðursvalir og fallegt útsýni á eftirsóttum stað í Reykjavík.

Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770 0309 / th@aldirfasteignir.is
Sveinn Eyland lögg. fast. s. 6 900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is

Forstofa: Komið er inn í forstofu með speglaskáp og rustic eikarparketi á gólfi. Frá forstofu er gengið inn í aðrar vistarverur íbúðarinnar.
Eldhús / borðstofa:  Afar sjarmerandi og rúmgott. Tveir gluggar í norður og stórkostlegt útsýni. Neðri skápar eru undir gluggum ásamt gaseldavél, uppþvottavél og þvottavél sem fylgja íbúðinni. Einnig fylgja með frístandandi eyja og eikarskápur. Gólfflísar eru fyrir framan eldhúsinnréttingu.
Hjónaherbergi:  Er rúmgott með stórum glugga í norður og gott útsýni. Rúmgóður skápur og eikarparket á gólfi.
Herbergi: Er  inn af forstofu til hægri með franskri gluggahurð og suðurglugga, eikarparket á gólfi.
Baðherbergi: Er mjög smekklegt.  Flísalagt með hita í gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu og handklæðaofn.  Innbyggð blöndunartæki.
Stofa: Rúmgóð og björt með eikarparket á gólfi, útgengt á góðar suðursvalir.
Sérgeymsla: Með íbúðinni fylgir geymsla í kjallara sem er skráð 2,9m².
Sameignlegt mjög gott þvottahús, hjólageymsla og þurrkherbergi  í kjallara hússins. 

Viðhaldssaga hússins : 
2026      Flestir gluggar og gler endurnýjað í íbúðum.
2020      Endurnýjun á stýrikerfi og búnaði lyftu
2019      Ný rafmagnstafla fyrir húsið
2018      Nýir gluggar í stigagangi
2017      Viðgert þak, þ.e. nýr pappi, túður og þakstál
2015      Múrviðgerðir og ný steining á húsi.      

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugateigur 17
Kjallaraíbúð
Skoða eignina Laugateigur 17
Laugateigur 17
105 Reykjavík
91.6 m2
Fjölbýlishús
3
763 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 1A
Copy of Sæþór_vefur (1).jpg
Hallgerðargata 1A
105 Reykjavík
91.6 m2
Fjölbýlishús
312
927 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Móavellir 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Móavellir 2
Móavellir 2
260 Reykjanesbær
83 m2
Fjölbýlishús
312
698 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Lynggata 2
3D Sýn
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Lynggata 2
Lynggata 2
210 Garðabær
100.7 m2
Fjölbýlishús
312
843 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin