Fasteignaleitin
Skráð 6. sept. 2024
Deila eign
Deila

Smyrilshlíð 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
97.3 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
97.900.000 kr.
Fermetraverð
1.006.166 kr./m2
Fasteignamat
81.250.000 kr.
Brunabótamat
60.570.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2020
Lyfta
Garður
Bílastæði
Aðgengi fatl.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2509098
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
Nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Elka, lgf., s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna fallega og vandaða 3ja-4ra herbergja íbúð við Smyrilshlíð 9 á Hlíðarenda, við rætur Öskjuhlíðar í Reykjavík.
Íbúð nr. 204 er 97.3 m2, með svölum og stæði í bílageymslu og afhendist fullbúin með gólfefnum, ísskáp/frysti, uppþvottavél, ofni, helluborði og háfi.
Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.  Athugið að myndir eru úr íbúð 304 en íbúðir á annarri hæð eru með fallegum brúnum innréttingum - sjón er sögu ríkari.
Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá Elku Guðmundsd., lgf., s. 863-8813, elka@fstorg.is - Guðný Ösp Ragnarsdóttir lgf. í síma 665-8909 // gudny@fstorg.is
eða öðrum sölumönnum hjá TORGI, Sími: 520-9595 / torg@fstorg.is


Hægt er að kynna sér óseldar íbúðir í þessu verkefni á heimasíðunni 102 Hlíðarendi (smella hér)

Nánari lýsing;
Eignin skiptist í opið og bjart alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, þaðan sem gengið er útá svalir. 
Íbúðinni fylgir sér bílastæði í bílakjallara hússins.  
Frábær staðsetning nálægt miðpunkti miðbæjarins. Stutt er í alla helstu þjónustu, frábærar gönguleiðir, íþróttir, samgöngur, iðandi mannlíf, skóla og stóra vinnustaði.

Smyrilshlíð 9 er 6 íbúða stigagangur sem er tilbúinn til afhendingar við kaupsamning.
Innréttingar eru mjög vandaðar frá danska fyrirtækinu JKE og ná upp í loft til þess að hámarka geymslurými. 
Borðplötur eru úr einstaklega fallegum og sterkum terrazzo quartzborðplötum í eldhúsi og á baði frá Granítsmiðjunni. Rafmagnstæki eru frá Miele. 
Á baðherbergi og þvottahúsi eru fallegar flísar í ljósgráum tón. Blöndunartæki, handlaugar og salerni er frá Tengi, flísar frá Álfaborg. 
Aukin lofthæð er í íbúðinni (2,80 metrar) og gólfsíðir gluggar.  Íbúðin afhendist með parketi á gólfi.
Lýsing er hönnuð af Lumex og er með free@home rafstýringu frá ABB em gerir þér kleift að búa til ljósasenur og slökkva öll ljós með einum takka

Nánar um eignir við Smyrilshlíð 9;
Húsin eru hönnuð af Alark arkitektum og innanhússhönnun var í höndum M/STUDIO Reykjavík þar sem mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.   
Efnið í innréttingunum er annars vegar ekta eikarspónn og hins vegar PU-lakk, sem er eitt það sterkasta á markaðnum í dag. Fataskápar í svefnherbergi og forstofu sem og baðinnrétting eru í sama efni og eldhúsinnrétting.
Allur frágangur er afar vandaður og efnisval mjög stílhreint. Aukin lofthæð er í íbúðum (2,8m) og vandaðir gólfsíðir Velfac gluggar.  
Hefðbundið ofnakerfi er í húsinu. Lýsing er hönnuð af Lumex.  Í öllum íbúðum er Free@home rafstýring frá ABB. Grunnkerfið fylgir með sem gerir notandum kleift að búa til ljósasenur og slökkva öll ljós með einum takka. Hægt er að bæta við kerfið eins og hver vill og vera með fullkomið hússtjórnarkerfi í íbúðinni. Forritið er mjög þægilegt og einfalt í notkun.
Sér bílastæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum. Sér heimtaug er vegna hleðslu rafbíla þannig að ekki verður truflun á rafmagni hússins við hleðslu bíla. 

Garðurinn er einstaklega fallegur og skjólgóður.
Hann er lokaður af með húsunum sem gefa gott skjól og frið frá iðandi umferð miðbæjarins. Í garðinum eru skemmtilegir runnar og tré ásamt borðum og bekkjum og upplýstu leiksvæði fyrir börn, sem gerir svæðið mjög fjölskylduvænt.   Garðurinn er glæsilegur og einstakur sælureitur íbúa.
Í stigagöngum eru stílhreinar flísar í anddyrum og inngöngum en hlýlegt og slitsterkt teppi á stigum og göngum á efri hæðum.
Í öllum íbúðum er vandað ál- og trégluggakerfi frá Velfac. Allt gler er háeinangrandi fyrir hita og hljóði svo að öll hljóð að utan eiga ekki greiða leið inn í íbúðirnar.
Myndavéladyrasími er í öllum stigagöngum og aðgangsstýrt aðgengi er inn í húsið, sem þýðir að það er lyklalaust. Hurð út úr garði er einnig aðgangsstýrð og því garðurinn læstur fyrir utanaðkomandi aðilum.
Bílakjallarinn er á tveimur hæðum með góðri náttúrulegri loftun og beinu aðgengi í alla stigaganga. Aðgangstýring er í bílageymslunni sem og í öllu húsinu sem auðveldar aðgengi. Sérstök rafmagnsheimtaug er í bílakjallarann sem tryggir öllum aðgengi að rafmagni fyrir rafmagnsbíla.
Sérhannaðir eldvarnargluggar eru þar sem við á og standast byggingareglugerð og klæðningin utan á húsinu uppfyllir ströngustu kröfur Mannvirkjastofnunnar um brunavarnir og gæði.
Gangstéttin umhverfis húsið og valdar leiðir inn í garðinum er upphitaðar.  Bílskúrar fylgja nokkrum íbúðum og skilast þeir með fjarstýrðri bílskúrshurð, gönguhurð og brunavarnarkerfi.

Nánar um hverfið:
102 Hlíðarendi er á frábærum stað þar sem stutt er í fjölmenna vinnustaði, skóla og leikskóla. Má þar nefna Landspítalann, Íslenska erfðagreiningu, HR og HÍ, Austubæjarskóla, Hlíðaskóla, Tækniskólann, Kvennaskólann, MH og MR.
Stutt er í alla helstu þjónustu í miðbænum, m.a. matvöruverslanir, sérverslanir, Kringluna, Hafnartorg, Laugaveginn, fjölda veitingastaða, heilsugæslu, LSH, opinberar stofnanir og svo mætti lengi telja. Fjölbreytt afþreying er í næsta nágrenni við 102 Hlíðarenda. Stutt er í mannlíf miðborgarinnar þar sem má finna listasöfn, leikhús, veitinga- og skemmtistaði. Stutt er í Tjörnina, Klambratún, Öskjuhlíð, Nauthólsvík, Hljómskálagarð, Perluna og Hörpuna svo fátt eitt sé nefnt. Ekki þarf að leita langt yfir skammt til að finna sér góða og skemmtilega hreyfingu í nánasta umhverfi svæðisins. Má þar nefna frábæra íþróttaaðstöðu Vals, Mjölni og WorldClass ásamt siglingasvæði, sjóböðum og strandlífi. Auk þess eru skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir allt um kring.

Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá Elku Guðmundsd., lgf., s. 863-8813 eða elka@fstorg.is eða öðrum sölumönnum hjá TORGI, Sími: 520-9595 / torg@fstorg.is

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2509098
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B3
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.070.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarfótur 19. IB 321
Bílastæði
Opið hús:17. sept. kl 11:45-12:15
Hlíðarfótur 19. IB 321
102 Reykjavík
96 m2
Fjölbýlishús
312
999 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 19,IB.323
Bílastæði
Opið hús:17. sept. kl 11:45-12:15
Hlíðarfótur 19,IB.323
102 Reykjavík
98.6 m2
Fjölbýlishús
312
973 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 19, IB 320
Bílastæði
Opið hús:17. sept. kl 11:45-12:15
Hlíðarfótur 19, IB 320
102 Reykjavík
98.8 m2
Fjölbýlishús
312
971 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 19. IB220
Bílastæði
Opið hús:17. sept. kl 11:45-12:15
Hlíðarfótur 19. IB220
102 Reykjavík
99.4 m2
Fjölbýlishús
312
965 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin