Fasteignaleitin
Skráð 10. júní 2025
Deila eign
Deila

Hagasel 14

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
176.4 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
116.900.000 kr.
Fermetraverð
662.698 kr./m2
Fasteignamat
98.850.000 kr.
Brunabótamat
84.400.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
Þvottahús
Garður
Fasteignanúmer
2054860
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Sjá má örlítil ummerki um raka í horni upp við loft í geymsluhluta þvottahúss, einnig eru ummerki um raka á vegg í sjónvarpsrými. í lofti inn á baðherbergi á efri hæð og í lofti í bílskúr. Að sögn seljenda telja þau að þetta stafi frá þaki áður en að það var yfirfarið fyrir nokkrum árum, þá voru naglar sem höfðu losnað negldir niður. 
Domusnova og Ingunn Björg kynna 7 herbergja endaraðhús á tveimur hæðum við Hagasel 14 Breiðholti. Rúmgóð timburverönd. Mjög snyrtileg afgirt hellulögð stétt fyrir framan hús og meðfram húsi.  Húsið er staðsett í rólegum botnlanga, og nýtur næðis frá umferð bakvið hús þar sem að engin umferðargata liggur upp að húsi frá suðurhlið. 
Eignin skiptist á eftirfarandi hátt:  Forstofa, 5 svefnherberbergi, stofa / borðstofa, sjónvarpshol, 2 baðherbergi, eldhús, þvottahús, geymsla, bílskúr. Húsið var nýlega múrviðgert að utan og málað að sögn seljenda. Skv. FMR er eignin skráð 176,4 fm2 þar af er bílskúr skráður 18,8 fm2. 
Fasteignamat næsta árs er 111.200.000. 

Frábær staðsetning í Seljahverfinu. 

Nýlegar endurbætur að sögn seljenda : 
  • Allar innihurðar hafa verið endurnýjaðar. 
  • Skipt hefur verið um ramma á rofum og tenglum. 
  • Þakkantur endurnýjaður fyrir ca 6 árum. 
  • Hús sprunguviðgert og málað fyrir ca 4 árum. 
  • Lóð endurnýjuð 2015 - 16. Byggð ný verönd ásamt skjólveggjum, hellulagt meðfram húsi og verönd fyrir framan hús hellulögð. 

Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi, skápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Vaskur, salerni.
Eldhús: Bjart og rúmgott með sérsmíðaðri innréttingu, frístandandi tvöfaldur ísskápur ásamt frístandi eldavél með háf yfir. Fínn borðkrókur, gluggar á þrjá vegu. Flísar á gólfi. 
Barnaherbergi 1: Inn af eldhúsi er herbergi sem ekki er inn á upprunalegri teikningu. Bjart með harðparketi á gólfi. 
Stofa / borðsstofa: Harðparket á gólfi, hljóðdempandi plötur á vegg í borðsstofu, úr stofunni er útgengt á skjólríkar suðursvalir. 
Bílskúr: 18.8 fm2 , heitt og kalt vatn. 

Neðri hæð: 
Hringstigi liggur úr holi niður á neðri hæð. 

Sjónvarpshol: Rúmgott, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, stór fataskápur. Parket á gólfi. Útgengt á rúmgóða timbur verönd sem snýr til suðurs.
Barnaherbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi. 
Barnaherbergi 3: Parket á gólfi. 
Barnaherbergi 4: Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagðir veggir og gólf, innrétting undir vaski, rúmgóður háskápur ásamt skápum á vegg, handklæðaofn, sturta með innbyggðum blöndunartækjum, baðkar,  salerni.

Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöklasel 27
Opið hús:15. júní kl 14:00-14:30
Skoða eignina Jöklasel 27
Jöklasel 27
109 Reykjavík
174.5 m2
Raðhús
614
681 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Kambasel 47
Bílskúr
Skoða eignina Kambasel 47
Kambasel 47
109 Reykjavík
218.7 m2
Fjölbýlishús
624
546 þ.kr./m2
119.500.000 kr.
Skoða eignina Hagasel 2
Bílskúr
Skoða eignina Hagasel 2
Hagasel 2
109 Reykjavík
161.4 m2
Raðhús
615
756 þ.kr./m2
122.000.000 kr.
Skoða eignina Kambasel 79
Skoða eignina Kambasel 79
Kambasel 79
109 Reykjavík
192.3 m2
Fjölbýlishús
725
624 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin