Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu snyrtilega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í litlu og vel viðhöldu fjölbýli á eftirsóttum stað í Hlíðunum, Reykjavík, með skjólgóðum og hellulögðum sérafnotareit. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 64,50 fermetrar.
Annar inngangur er fyrir efri hæð svo inngangur á jarðhæð (sjá mynd) nýtist sem sérinngangur fyrir þessar íbúð og forstofa nýtist íbúðinni sem sér forstofa með sérinngang en þessir auka fermetrar eru ekki inni á skráðum fermetrafjölda.
Endurbætur og viðhald:
- Eldhús og baðherbergi gert upp ca. 2018.
-
Ofnalagnir endurnýjaðar 2016.
- Skipt um
alla glugga á austur hlið (götu megin) árið 2015 og glugga að hluta á suður hlið hússins 2016.
- Sameign og þvottahús
málað 2018
-
Lagnir voru myndaðar síðasta sumar og allt leit vel út.
-
Þak hefur verið skoðað reglulega og er það talið í góðu ástandi.
Skv. sölulýsingum annarra eigna sem hafa verið á sölu í húsinu undanfarin ár:- Skólp endurnýjað fyrir nokkrum árum.
- Húsið steinað ca. 2007.
- Skipt um aðra glugga 2004.
- Dren og skólplagnir myndaðar fyrir nokkrum árum og drenlögn viðgerð (austurhlið) í framhaldi.
Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu, mjög rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og búr/geymslu. Útgengi er frá eldhúsi út á sér afnotareit (sjá myndir).
Nánari lýsing:Forstofa / hol: Rúmgott rými í sameign sem nýtist sem forstofa fyrir þessa íbúð.
Eldhús: Eldhús hefur verið nýlega endurnýjað með snyrtilegri hvítri eldhúsinnréttingu og góðu skápaplássi. Frá eldhúsi er útgengi út á skjólgóðan, hellulagðan sérafnotareit. Innaf eldhúsi er búr/geymsla, sem nýtist einstaklega vel sem hluti af eldhúsinu.
Stofa: Björt og notaleg stofa með parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Mjög stórt og rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og góðu plássi fyrir fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt gólf, walk-in sturta og nett innrétting við vask með efri skáp.
Annað: Sérafnotareitur við íbúð, hellulagður og skjólgóður.
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína vél.
Húsið hefur verið viðhaldið í gegnum árin. Frábær staðsetning í Hlíðunum, stutt í skóla, leikskóla, þjónustu og útivist í Öskjuhlíð. Einstaklega rólegt og fjölskylduvænt hverfi. Um er að ræða vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á einum vinsælasta stað borgarinnar, sem hentar sérstaklega vel fyrir fyrstu kaupendur, einstaklinga eða par sem vilja útirými og rólegt umhverfi. Ekki missa af þessari.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keyptLóðarmat fyrir lánaútreikninga: 7.870.000