Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2026

Rekagrandi 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
52.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.500.000 kr.
Fermetraverð
1.046.065 kr./m2
Brunabótamat
29.150.000 kr.
Byggt 1983
3. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20240202
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Um er að ræða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð á eftirsóttum stað í Vesturbænun. Birt stærð eignarinnar skv. HMS er 52,1 fm og að sögn seljanda er geymslan (3-4 fm) ekki skráð í heildarfermetrana. Að sögn seljanda hefur húsið fengið venjubundið og gott viðhald í gegnum tíðina. Húsið var steypuviðgert að utan á árunum 2014 og 2015. Allir gluggar í öllu húsinu voru endurnýjaðir á suðurhlið vorið 2020, það ár var hitaveitugrind yfirfarin af pípara um haustið og skipt var um loka. Nýlegt járn á þaki (árið 2023). Snyrtileg og vel umgengin sameign - góð aðkoma. 

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu, fataskápur. Á vinstri hönd er baðherbergi með flísum á gólfi, baðkar með sturtu, neðri skápur og tengi fyrir þvottavél. Rúmgott svefnherbergi með fataskáp. Björt stofa með útgangi út á svalir. Við stofu er borðstofa / borðkrókur. Eldhús opið inn í stofu með snyrtilegri eldri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa. Parket og flísar á gólfum. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að sameiginlegu þvottahús og hjóla- og vagnageymslu.  

Mjög góð staðsetning og mikil þjónusta í hverfinu. Stutt í skóla og leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu á Granda og Eiðistorgi. Íþróttasvæði KR í næsta nágrenni. Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjávarsíðuna

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drekadalur 9J - 02-04
Efsta hæð
Drekadalur 9J - 02-04
260 Reykjanesbær
63.9 m2
Fjölbýlishús
211
781 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Drekadalur 9C - 01-03
Drekadalur 9C - 01-03
260 Reykjanesbær
63.1 m2
Fjölbýlishús
211
824 þ.kr./m2
52.000.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3
Efsta hæð
IMG_9304.jpeg
Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3
101 Reykjavík
236.3 m2
Fjölbýlishús
332
Fasteignamat 188.000.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Kleppsvegur 32
Efsta hæð
Hleðslustöð
IMG_1653.JPG
Skoða eignina Kleppsvegur 32
Kleppsvegur 32
105 Reykjavík
59 m2
Fjölbýlishús
2
958 þ.kr./m2
56.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin