Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Herjólfsstígur 20

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
240.7 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
128.000.000 kr.
Fermetraverð
531.782 kr./m2
Brunabótamat
115.750.000 kr.
Byggt 2005
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22922771
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir kynnir:

Glæsilegt 240,7m2 heilsárshús að Herjólfsstíg 20 á vinsælum og eftirsóttum stað í landi Ásgarðs.
Eignin er skráð samkv. Þjóðskrá íslands 240,7m2. Lóðin er 11.100m2 eignarland.

** 15 mín akstur frá Selfossi
** Hitaveita
** Gólfhiti
** Heitur pottur
** Sauna / útisturta
** Óheft útsýni

Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 / th@aldirfasteignir.is
Sveinn Eyland lögg. fast. 6 900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is

Nánari lýsing:

Herjólfsstígur 20 er afar glæsilegt hús á tveimur hæðum ásamt gróðurhúsi
Gengið er inní forstofu á efri hæð hússins. 
Eldhús / Stofa mynda opið, bjart og skemmtilegt rými með góðri lofthæð. Eldhúsið er með góðu skápaplássi og vel tækjum búið ásamt eyju. Bakarofn í vinnuhæð. Hluti af opna rýminu er borðstofa. Ítalskar parketflísar á gólfi.  Borðplötur, helluborð, vaskur og blöndurtæki voru endurnýjuð nýlega.
Út frá aðalrými hússins er gengið út á rúmgóðann pall með miklu og fallegu útsýni
Fjögur svefnherbergi eru í eigninni. 
Eitt baðherbergi og gestasnyrting eru í eigninni.
Á neðri hæð hússins er mikið og opið rými sem hefur mikla möguleika.
Eignin hefur hlotið mjög gott viðhald.  Hita- og kaldavatnsinntök voru uppfærð árið 2017 og ljósleiðari kominn inn og tengdur.  Einnig er vert að taka fram að mikil endurnýjun hefur átt sér stað í húsinu, þ.m.t. var gólfefni skipt út fyrir ítalskar parketflísar árið 2017, þá voru veggir í baðherbergjum einnig flísalagðir. Þá hefur rafmagn verið endurnýjað að hluta þar sem ný rafmagnstafla var sett upp á hæðinni og öllum loftljósum skipt út fyrir innfelld LED ljós. Að lokum hefur mikið verið gert fyrir lóðina, hækkun á jarðvegi meðfram palli, gróðurhús sett niður, saunatunna og heitur pottur kominn, rafstýrð útisturta, ásamt að pallur hefur verið stækkaður verulega og grindverk sett meðfram öllu húsinu. Gróður hefur einnig fengið mikla ræktun, bæði gras og tré sett niður víðs vegar á lóðinni. Stofnað hefur verið félag við Herjólfsstíg og var vegur endurnýjaður haustið 2024.
Næg bílastæði eru við eignina sjálfa og eins við neðra bílastæði.  
Nánasta umhverfi býður upp á mikla fjölbreytni í útivist og stutt er í alla helstu þjónustu.


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heinaberg 23, Góð staðsetning
Bílskúr
Á einni hæð
Heinaberg 23, Góð staðsetning
815 Þorlákshöfn
224.2 m2
Einbýlishús
614
423 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Heinaberg 23, Góð staðsetning
Heinaberg 23, Góð staðsetning
815 Þorlákshöfn
224.2 m2
Einbýlishús
614
423 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Þrastahólar 9
Heitur pottur
Skoða eignina Þrastahólar 9
Þrastahólar 9
805 Selfoss
89.3 m2
Sumarhús
423
693 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14 íb. 501
Bílskúr
Opið hús:03. okt. kl 12:00-12:30
Hnjúkamói 14 íb. 501
815 Þorlákshöfn
241 m2
Fjölbýlishús
4
385 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin