Fasteignaleitin
Skráð 13. ágúst 2026

Akrakór 5

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
220.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.500.000 kr.
Fermetraverð
677.697 kr./m2
Fasteignamat
95.400.000 kr.
Mynd af Þóra Þrastardóttir
Þóra Þrastardóttir
Fasteignasali
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2329127
Landnúmer
207596
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir: Bókaðu skoðun.  Nýtt og vandað staðsteypt parhús á útsýnisstað með innbyggðum bílskúr á 587,0 fm leigulóð.
Eignin Akrakór 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 232-9127, birt stærð 220.6 fm.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Fasteignasali, í síma 822-2225, tölvupóstur thora@fstorg.is.

Nánari lýsing: 
Húsið er á tveimur hæðum og er efri hæð klædd og einangruð að utan að hluta með vandaðri álklæðningu, neðri hæð og innan af svölum á efri hæð er sjónsteypa.  
Samkvæmt teikningu skiptist neðri hæð í forstofu, gang með útgönguhurð, þvottahús, 3 svefnherbergi, baðherbergi með útgönguhurð til suðurs þar sem gert verður ráð fyrir heitum potti og innbyggður rúmgóður bílskúr með geymslu inn af.
Gólfhiti er kominn á neðri hæð og búið að tengja í hitagrind.
Á efri hæð skiptist húsið í eldhús/borðstofu þar sem gert er ráð fyrir eldhúseyju, stór rennihurð út á stórar 21,9 m2 suður svalir með hitalögnum í svalagólfinu ásamt gönguhurð úr eldhúsi, stofu með glæsilegum stórum útsýnis hornglugga án gluggapósta til að útsýnið njóti sín óskert, gólfsíðir gluggar eru í flestum rýmum sem gefa góða birtu.
Gert er ráð fyrir arni í stofu, aðrar svalir úr holi beint á móti stiga, fljótandi stigi er á milli hæða.
Húsið er skráð á byggingarstig B2 Fokhelt en matsstig 5 tilbúið til innréttingar þó kemur í ljós við skoðun
að húsnæðið nær ekki að öllu leiti því matsstigi þar sem gólf eru ekki frágengin í réttri hæð undir endanlegt slitlag, fráveitulagnir innanhús eru ekki fullgerðar ásamt neyslulögnum, hita og loftræstikerfi eru ekki fullgerð og frágengin.
Lóð er grófjöfnuð að framan en búið að tyrfa að aftan og að hluta suðaustan við húsið. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
28.1 m2
Fasteignanúmer
2329127
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 49
Bílskúr
Skoða eignina Vorbraut 49
Vorbraut 49
210 Garðabær
229.5 m2
Raðhús
53
998 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 7
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Sunnusmári 7
Sunnusmári 7
201 Kópavogur
111.2 m2
Fjölbýlishús
413
996 þ.kr./m2
110.800.000 kr.
Skoða eignina Melalind 6
Hleðslustöð
Skoða eignina Melalind 6
Melalind 6
201 Kópavogur
130.3 m2
Fjölbýlishús
312
713 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (301)
Opið hús:18. ágúst kl 09:00-10:00
Skjámynd 2026-06-05 135054.png
Vorbraut 14 (301)
210 Garðabær
130.3 m2
Fjölbýlishús
423
943 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin