Gimli fasteignasala kynna fallegt og reisulegt þriggja hæða 305 fm einbýlishús á góðum stað í grónu hverfi.
Tveggja herbergja ca 68 fm íbúð í kjallara með sérinngangi. Aðeins einnar mínútna ganga í náttúruparadísina í Víðidal/Elliðaárdal
þar sem finna má frábæra skógarstíga, göngustíga og hjólastíga.Mjög góður 70 fm timburpallur með heitum potti í suðvestur og útiskúr 15 fm.
BÓKIÐ SKOÐUN.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 305.1 fm. NÁNARI LÝSING:Gengið er inn á miðhæðina.
Forstofa er flísalögð með skáp.
Þvottahús með innréttingu, glugga og flísum á gólfi.
Hol með útgengni út á flottan sólpall sem snýr suðvestri.
Innangengt í bílskúr úr holi. Gönguhurð er á bílskúr ásamt gluggum.
Eldhús og stofur mynda skemmtilegt og bjart alrými. Arinn í stofu og gegnheilt eikar parket á gólfi.
Eldhúsið er sérlega vandað og allt endurnýjað á vandaðan hátt. Flísar á gólfi.
Aukin lofthæð.
Efri hæð.Baðherbergi flísalagt með innréttingu, sturta, handklæðaofn, upphengt salerni og gluggi á baði.
Hjónaherbergi með fataherbergi og sérbaðherbergi með sturtuklefa. Parket á gólfi og útgengt á svalir.
Tvö barnaherbergi með parket á gólfi.
Kjallarinn.Hann skiptist í forstofu, eldhús, stofa, baðherbergi með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi.
Rúmgott herbergi ásamt stofu og eldhúsi sem eru með loftræstingu og glugga.
Útískúr er vel byggður 15 fm með rafmagnstöflu, tenglum, ljósum og ofnum.Að sögn eigenda hafa gluggar verðið endurnýjaðir á suðurhlið hússins og hluta vesturhliðar, auk þess sem skipt var um gler í
mörgum gluggum árin 2012 og 2018.
Að sögn eigenda hafa eftirtaldar framkvæmdir verið gerðar.
2022:
Baðherbergi sett í svefnherbergi
Fataherbergi endurnýjað
Eldhús endurnýjað
Vinilflísar á gólfi frá Harðviðarval
Eldhúsinnrétting frá Kvik
Siemens tæki frá Rafha
Parket slípað
Pallur málaður
Skúr málaður
Kjallaraíbúð gerð að sér íbúð
Ný útihurð í kjallara
Nýtt sturtugler í sturtu á baðherbergi
Nýr sturtuklefi í kjallaraíbúð
2023
Þakkantur endurnýjaður að austanverðu hússins.
2024
Þakið málað
Falleg eign á vinsælum stað í Reykjvík, aðeins einnar mínútna ganga í náttúruparadísina í Víðidal/Elliðaárdal þar sem finna má frábæra skógarstíga, göngustíga og hjólastíga.Nánari upplýsingar veita: Inga Reynis lgf í síma 820-1903 og í tölvupóst inga@gimli.is og Bárður Tryggvason Sölustjóri í tölvupóstur bardur@gimli.is.Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.