BYR fasteignasala kynnir í einkasölu NÚPAHRAUN 24, 815 Þorlákshöfn. Nýtt fjögurra herbergja raðhús, suðurgarður. Eigninn stendur í nýju hverfi í Þorlákshöfn í nágrenni við nýjan miðbæ Þorlákshafnar, stutt í alla almenna þjónustu. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er timburhús, byggt árið 2022. Húsið er 103,9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri/gangur, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
- Allar nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu s. 483-5800 byr@byrfasteignsala.is - Nánari lýsing: Anddyri/gangur með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá stofu út í garð til suðurs.
Eldhús, spanhelluborð, vifta, ofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Innbyggð uppþvottavél getur fylgt ef óskað er eftir.
Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi er með tvöföldum fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö, bæði þeirra eru með fataskápum.
Baðherbergi, flísalagt gólf og sturtuveggir, sturta, vegghengt salerni, vask innrétting, speglaskápur, handklæðaofn.
Þvottahús, vinnuborð með skolvask.
Geymsla, inntök eru í geymslu.
Gólfefni: Harðparket er á alrými, gangi og svefnherbergjum. Flísar eru á anddyri, baðherbergi og þvottahúsi.
Gólfhiti er í eigninni. Gólfhitastýringar fylgja ekki. Loftdúkur frá Parka er í alrými. Upptekið loft er í allri eigninni, lofthæð í hæðsta punkt er 4,5 metrar. Vent Axia Svara viftur eru í eldhúsi og á baðherbergi, vifturnar eru hljóðlátar með ljósa og rakaskynjara auk bluetooth möguleika.
Húsið er hannað af Pro- ark arkitektastofu. Núpahraun 24 stendur í raðhúsalengjunni Núpahraun 20-26. Húsið er timburhús á einni hæð, klætt að utan með dökkgráu liggjandi bárustáli með hvítri timburklæðningu í innskotum.
Gluggar eru viðhaldsfríir PVC gluggar frá viðurkenndum aðila, hvítir RAL9010 að innan og utan. Á þaki er Ranilla stallað þakstál svart. Álrennur eru utan á þakkanti.
Lagnaleið er fyrir hleðslustöð rafbíla, ekki er lagt í og hleðslustöð fylgir ekki. Gert er ráð fyrir sjóbræðslu í bílaplani (rör er út úr húsi). Sorptunnuskýli fylgir.
MYNDIR Í AUGLÝSINGU ERU ÚR SAMBÆRILEGRI EIGN FRÁ SAMA SELJANDA.