Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, vel skipulagða og alveg endurnýjaða 123,5 fermetra 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með um 32,3 fermetra skjólsælli verönd í vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu við Mánatún í Reykjavík auk geymslu og sér bílastæðis í bílageymslu. Gólfhiti er í allri íbúðinni og er hún með aukinni lofthæð. Starfandi húsvörður er í húsinu og á húsfélagið eina íbúð í húsinu sem nýtt er til að kosta hluta rekstrar hússjóðs.
Fyrirhugað fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 er kr. 103.500.000.-
Íbúðin er öll nýendurnýjuð og máluð, sérsmíðaðar innihurðir frá Parka, eldhúsinnrétting frá Fríform, tæki frá AEG og spanhelluborð frá BORA. Pergo parket er á allri eigninni að undanskildu þvottaherbergi og baðherbergi. Einnig er nýlega búið að endurnýja verönd með lerki.
Eignin getur verið laus fljótlega.
Lýsing eignar:
Forstofa, parketlögð og rúmgóð með innbyggðum fataskápum.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og rúmgott með mjög fallegri hvítri innréttingu, ofn í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp með frysti. Stór eyja með spanhelluborði með innbyggðri viftu og áfastri borðaðstöðu.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum og útgengi á um 32,5 fermetra nýlegir viðarverönd til vesturs með skjólveggjum. Heimilt er að byggja yfir verönd að hluta.
Svefngangur, parketlagður.
Þvottaherbergi, flísalagt með borði og vaski.
Baðherbergi, rúmgott, flísalagt gólf og veggir, handklæðaofn, innrétting, vegghengt wc og stór flísalögð gólfsturta með sturtugleri.
Barnaherbergi I, við forstofu er parketlagt.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott.
Hjónaherbergi, rúmgott, parketlagt og með innbyggðum fataskápum.
Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu merkt 05N116.
Sérgeymsla, 8,5 fermetrar að stærð, máluð gólf og með aukinni lofthæð.
Sameiginleg stór hjóla og vagnageymsla með útgengið á lóð til norðurs.
Húsið að utan lítur vel út, er klætt og því viðhaldslítið og sameign er öll mjög snyrtileg og það eru tvær lyftur.
Lóðin, sem er 14.963,0 fermetrar að stærð og er sameiginleg með húsunum nr. 7-17 við Mánatún, er fullfrágengin með stórum inngarði þar sem er fjöldi sameiginlegra bílastæða, stórar harðviðarverandir, stórar hellulagðar verandir og stígar og falleg lýsing.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, mjög miðsvæðis þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, miðborgina, Laugardalinn o.fl.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is