Garðatorg eignamiðlun kynnir til sölu bjarta og rúmgóða þriggja herbergja íbúð með svölum á 2. hæð litlu fjölbýlishúsi við Hrísmóa 10 í Garðabæ.
Hér er um að ræða vel skipulagða eign í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 1984. Íbúðin er með stóru svefnherbergi, öðru minna, stofu, borðstofu, eldhúsi, litlu þvottahúsi og stórum svölum. Fallegt útsýni er úr íbúðinni.Bókið skoðun: Unnur, s: 8660507 eða unnur@gardatorg.isNánari lýsing:Forstofa: Parket á gólfi og góður fataskápur.
Stofa og borðstofa: Bjart alrými með fallegum gluggum, dásamlegu útsýni og parketi á gólfi. Gengið er út á rúmlega 12fm svalir úr borðstofu.
Eldhús: Innrétting með góðu skápaplássi, helluborði, bakarofni og háfi. Korkur á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með stórum fataskápum, korkur á gólfi og útgengi á svalir.
Svefnherbergi II: Korkur á gólfi
Baðherbergi: Hvít innrétting með skúffum undir vaski, spegill með hliðarskápum, sturtuklefi og baðkar. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Er innan íbúðar, hillur á vegg, vaskur með lítilli skápainnréttingu og flísar á gólfi.
Í kjallara er sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla.
Fyrir framan húsið eru mörg sameiginleg bílastæði.
Birt stærð eignar er 93,7fm samkvæmt HMS, þar af er geymsla 5,7fm.
Eignin er staðsett á vinsælum stað í Garðabæ. Íþróttamiðstöðin og sundlaugin í Ásgarði eru í göngufæri og stutt er í matvöruverslanir, veitingastaði, heilsugæslu og apótek á Garðatorgi og í Litlatúni. Leikskólarnir Kirkjuból og Bæjarból eru í næsta nágrenni sem og Flataskóli, íþróttasvæði Stjörnunnar og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ.**Fasteignamat ársins 2026 er kr 72.200.000.-**Þetta er áhugaverð eign á góðu verði sem býður upp á ýmsa möguleika**Nánari upplýsingar veitir:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteingasali, s:8660507 eða unnur@gardatorg.is