Sumarbústaður 21,4 ferm. auk geymslu, 7,3 ferm, er stendur á 3,9 ha. lóð úr landi Stangarholts á Mýrum, landnúmer L198769, auk þess fylgir með í kaupunum 4,6 ha. lóð (nr. 53), landnúmer L198768
Húsið er timburhús, byggt árið 2009, landið er eignarland, samtals 8,5 hektarar að stærð (2 lóðir).
Ekki er rafmagn er í húsinu, kaldavatnslögn er tengd húsinu.
Bústaðurinn þarfnast töluverðs viðhalds, vatnslögn þarfnast viðhalds.
Flugbraut BIXS (Stangarholt) er í námunda við bústaðinn (500 metrar)
Til þess að fá frekari upplýsingar um eignina, eða bóka skoðun, hafið samband við Skúla Sigurðarson, löggiltan fasteignasala, í síma 898 7209, skuli@eignasala.is eða Júlíus Steinþórsson, löggiltan fasteignasala, í síma 899 0555, julli@eignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Bjarg fasteignasala hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.