Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 63, 640 Húsavík
Um er að ræða 165,2M² einbýlishús á flottum útsýnisstað. Eignin er byggð árið 1934 úr timbri og er á þremur hæðum. Innra skipulag skiptist í fimm svefnherbergi, eldhús, tvö baðherbergi, tvær stórar stofur, eldhús og þvottahús.
Nánari Lýsing:
Aðalhæð eignarinnar er 60 M². Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi, inn af forstofunni tekur við hol sem tengir saman eldhús, stofur og stiga upp á efri hæð eignarinnar. Stofurnar eru samliggjandi en á milli þeirra er rennihurð svo hægt er að loka á milli. Eldhúsið er með viðarlitaðri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum og dökk borðplata. Inn af eldhúsinu er búr. Niðurgengt er úr eldhúsinu niður í kjallarann.
Gólfefni: í eldhúsi og holi eru flísar og í stofu er viðarparket.
Efri hæð: er 48,5 M². Þegar komið er upp á efri hæðina tekur við gangur sem tengir saman öll rými á hæðinni. Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni, eitt frekar lítið og svo tvö rúmgóð herbergi. Nýlegir fataskápar eru í tveim svefnherbergjum. Baðherbergið á hæðinni er með speglaskáp, salerni, vask og sturtubaðkari.
Uppgengt er upp á háaloft sem nýtist sem geymsla á hæðinni.
Gólfefni: Harðparket á öllum svefnherbergjunum og flísar á baðherberginu.
Kjallari: er 48,5 M². í kjallaranum eru tvö herbergi, þvottahús og baðherbergi. Þegar komið er niður stigann úr eldhúsinu tekur við svefnherbergi. Hitt svefnherbergið er inn af þvottahúsi. Það herbergi er rúmgott og er með harðplastparketi á gólfi. Þvottahús er með flotuðu gólfi og bekkjarinnréttingu. Baðherbergi á hæðinni hefur verið gert upp á smekklegan hátt.
Stór og skjólgóð timburverönd sunnan megin við húsið og við inngang. Skiptist veröndin í efri og neðri pall. Stór lóð tilheyrir húsinu eða 1052 m2 lóð. Gott aðgengi er að húsinu og er mikið pláss fyrir bílastæði. Sunnamegin við timburverönd er grasflötur og töluverður gróður er við lóðarmörk.
Endurbætur:
Búið er að endurnýja lagnir ásamt ofnum.
parket endurnýjað fyrir nokkrum árum á fjórum herbergjum og gólf í þvottahúsi var flotað. Baðherbergi á jarðhæð var endurnýjað fyrir nokkrum árum og voru þá settar flísar á gólfið. Fataskápar á efstu hæð voru smíðaðir af Norðurvík. Tréverk í kringum glugga var málað árið 2020. Þak þarfnast málunar en bárujárn virðist vera í lagi.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á