Fasteignaleitin
Skráð 12. jan. 2026
Deila eign
Deila

Valshlíð 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
103.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
1.207.930 kr./m2
Fasteignamat
87.850.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Garður
Fasteignanúmer
2532607
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Nei
Byggingarstig
B3 - Fullgerð bygging að utan og tilbúin til innréttingar
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Procura kynnir fjölbýlishús í 102, Reykjavíkurborg

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Íbúð 212 - Verð 124.9M

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 212.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.

Íbúðir afhendast fullbúnar haust 2025.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR

Virðuleg og vönduð 3ja herbergja rúmgóð horníbúð á 2. hæð. Birt stærð er 103,4 fm þar af 7,4 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, gang, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu.
Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2.

Nánari lýsing:
Í anddyri
eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri inn gang og beint inn í rúmgott alrými, eldhús
með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Svefnherbergi með skáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssybláu stáli. Afmörkup aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0046. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis:
www.hlidarhorn.is

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

    Fyrirvarar:

    Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

    Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

    Engin gögn fundust fyrir þessa eign

    Sambærilegar eignir

    Skoða eignina Fálkahlíð 5
    Bílastæði
    Opið hús:17. jan. kl 12:00-12:20
    Skoða eignina Fálkahlíð 5
    Fálkahlíð 5
    102 Reykjavík
    128.4 m2
    Fjölbýlishús
    423
    957 þ.kr./m2
    122.900.000 kr.
    Skoða eignina Fálkahlíð 5
    Bílastæði
    Opið hús:17. jan. kl 12:00-12:20
    Skoða eignina Fálkahlíð 5
    Fálkahlíð 5
    102 Reykjavík
    120.2 m2
    Fjölbýlishús
    423
    1006 þ.kr./m2
    120.900.000 kr.
    Skoða eignina Valshlíð 3
    Skoða eignina Valshlíð 3
    Valshlíð 3
    102 Reykjavík
    113.6 m2
    Fjölbýlishús
    413
    1073 þ.kr./m2
    121.900.000 kr.
    Skoða eignina Valshlíð 3
    Skoða eignina Valshlíð 3
    Valshlíð 3
    102 Reykjavík
    117.8 m2
    Fjölbýlishús
    413
    1018 þ.kr./m2
    119.900.000 kr.
    Fasteignaleitin
    Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
    Hafðu samband
    © Copyright 2026 - Fasteignaleitin