Fasteignaleitin
Skráð 21. maí 2026

Hraunhólar 4

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
229.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
125.750.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20706339
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir eignina Hraunhólar 4a, 210 Garðabæ. Um er að ræða tvær íbúðir ásamt bílskúr. Heildarstærð 229,7fm.

Hér er um að ræða einstaka eign sem bíður upp á mikla möguleika.

Eignin Hraunhólar 4a er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-0633, birt stærð 172,3 fm. og íbúð á neðri hæð leigueining 207-0632 birt stærð 57,4​​​ fm​.

Aðal hæð:
Gengið er inn að vestan. Sólskáli brúar húsasundið milli Hraunhóla 4a og Hraunhóla 4 sem tengjast saman á einum vegg að sunnan. Þegar inn er komið er eldhús á vinstri hönd og á þeirri hægri er stofa og alrými.
Eldhús: Gott skápa- og vinnupláss. gott pláss fyrir setkrók. Inn af eldhúsi er hringstigi niður í kjallara í sameiginlegt þvottahús með íbúð á neðri hæðinni.
Stofan er stór og björt og rúmgóð. Arinn/kamina er fyrir miðju rýminu sem gefur skemmtilegt yfirbragð.
Herbergin eru 3 öll í góðri stærð.
Hjónaherbergið er nokkuð veglegt og bjart vel skápum búið.
Barnaherbergin tvö eru einnig í góðri stærð staðsett við enda gangsins.
Baðherbergi er mjög veglegt búið hornbaðkari, innréttingu og salerni. Flísar á gólfi og upp á veggi.

Bílskúr: Er vel búinn, heitt og kalt vatn, gryfja og lítið herbergi inn af vinnurými. Rafmagnsstýrð fellihurð hæð ca 2,5m.

Íbúð í kjallara (207-0632)

Hér er um að ræða einstaka eign með sérinngangi.

Eignin hefur á að skipa tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi, stofu og þvottahúsi sem er í sameign. 
Gengið er inn á austurhlið hússins komið er inn í alrými (stofu sem opin er inní eldhús).
Eldhús er búið vandaðri eldri innréttingu, gott skápa og vinnupláss. Lítil set aðstaða. 
Stofan er björt og nokkuð rúmgóð.
Inn af stofu er lítill gangur sem tengir herbergi og baðherbergi við alrýmið.
Baðherbergið er búið sturtuklefa, vaskinnréttingu og salerni.
Herbergin eru bæði í góðri stærð.

Þvottahús er inn af íbúð sameiginlegt með efri hæð.

Ath! Húsgögn geta fylgt leigueiningu ef þess er óskað og verður tilboðsverð að endurspegla það.


Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Nánari upplýsingar veitir Héðinn Birnir Ásbjörnsson Lögg. fasteignasali, í síma 848 4806, tölvupóstur hedinn@fastborg.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lerkidalur 1
Bílskúr
Skoða eignina Lerkidalur 1
Lerkidalur 1
260 Reykjanesbær
239 m2
Einbýlishús
525
606 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Þernunes 13
Bílskúr
Skoða eignina Þernunes 13
Þernunes 13
210 Garðabær
139.9 m2
Fjölbýlishús
322
857 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Stakkhamrar 22
Opið hús:02. júlí kl 17:30-18:00
Stakkhamrar 22.jpg
Skoða eignina Stakkhamrar 22
Stakkhamrar 22
112 Reykjavík
280 m2
Einbýlishús
634
654 þ.kr./m2
183.000.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðartún 23
Bílskúr
Hallgerðartún 23
860 Hvolsvöllur
230 m2
Einbýlishús
65
630 þ.kr./m2
145.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin