Fasteignaleitin
Skráð 20. mars 2026

Brekkugata 23 301

Tví/Þrí/FjórbýliNorðurland/Akureyri-600
96.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.200.000 kr.
Fermetraverð
719.335 kr./m2
Fasteignamat
44.450.000 kr.
Brunabótamat
46.300.000 kr.
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2145452
Landnúmer
147414
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gott svo vitað sé
Raflagnir
Gott svo vitað sé
Frárennslislagnir
Gott svo vitað sé
Gluggar / Gler
Gott svo vitað sé
Þak
Gott svo vitað sé
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
37,07
Upphitun
Hitaveita - Ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Kasa fasteignir 461-2010.

Brekkugata 23, íbúð 301 - Falleg og mikið uppgerð 96,20 fm íbúð í virðulegu þriggja íbúða húsi sem hefur fengið mikið og gott viðhald í gegnum árin.
Gott útsýni er úr eigninni, en húsið er á frábærum stað, rétt við miðbæ Akureyrar. 
Húsið hefur gengið í gegnum miklar endurbætur í gegnum árin, en m.a. er búið er að endurnýja þak, þakrennur og niðurföll, hitakerfi, ofna og frárennslis- og neysluvatnslagnir. 
Íbúðin hefur verið gerð upp að mestu leiti en þar má nefna innréttingar, hurðar, gólfefni, tæki og fleira.


** Miðhæð og efstahæð eru í eigu sömu aðila og eru báðar íbúðirnar til sölu **

Eignin skiptist í forstofu, hol, 4 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Einnig fylgir eigninni bílastæði og afnot af verönd. 

Forstofa er með parketi á gólfi og þaðan er gengið upp stiga inn í íbúðina.
Baðherbergi er með parketi á gólfi. Þar er hvít innrétting með vaski og plássi fyrir þvottavél, upphengt salerni, sturta og opnanlegur gluggi. Einnig er mögulegt að koma fyrir þurrkara.
Svefnherbergin eru 4 á hæðinni, öll með parketi á gólfum. Í tveimur herbergjanna er ljós innréttingu með vaski.
Eldhús er með parketi á gólfi og góðri innréttingu með viðar-borðplötu og plássi fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými ásamt eldhúsinu. Þar er parket á gólfi og gott útsýni í Austur.
Þvottahús og sér-geymsla fyrir íbúðina eru í sameign á jarðhæð.  
Rúmgóð Verönd er vestan við húsið og er hún til sérafnota tveggja íbúða í húsinu.
Eigninni fylgir bílastæði á steyptu bílaplani með snjóbræðslukerfi vestan við húsið. 

- Frábær staðsetning rétt við miðbæ Akureyrar
- Þak hússins var endurnýjað árið 2021
- Steypt bílaplan vestan við húsið og gangstétt að norðanverðu var endurgert árið 2025 og snjóbræðslu komið fyrir
- Árið 2025 var grafið frá húsinu að vestan og norðan og drenlögnum komið fyrir
- Verönd vestan við húsið var stækkuð og endurnýjuð árið 2024

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/08/201819.850.000 kr.31.500.000 kr.96.2 m2327.442 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dúfnahólar 2
Bílskúr
Opið hús:26. mars kl 17:30-18:00
Skoða eignina Dúfnahólar 2
Dúfnahólar 2
111 Reykjavík
122 m2
Fjölbýlishús
514
639 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Birkiholt 6
Skoða eignina Birkiholt 6
Birkiholt 6
225 Garðabær
94.9 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 3 íb. 501
Hallgerðargata 3 íb. 501
105 Reykjavík
61.8 m2
Fjölbýlishús
211
1212 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 404
Suðurhella 16 íb. 404
221 Hafnarfjörður
75.4 m2
Fjölbýlishús
312
887 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin