Fasteignaleitin
Opið hús:20. júlí kl 16:30-17:00
Skráð 14. júlí 2026

Heiðarlundur 1 E

RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
142.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
651.473 kr./m2
Fasteignamat
84.200.000 kr.
Brunabótamat
75.400.000 kr.
Mynd af Björn Guðmundsson
Björn Guðmundsson
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2147158
Landnúmer
148160
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Eirrör í ofnakerfi
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Talið í lagi
Gluggar / Gler
Nýjir gluggar
Þak
Nýlegt - 2010
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Til suðurs
Upphitun
Hitaveita/ofnakerfi
Inngangur
Tveir inngangar
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Heiðarlundur 1 E

Virkilega vel skipulögð og rúmgóð 5-6 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á afar vinsælum stað í Lundarhverfi. Eignin er samtals 142,6 fm með baðherbergi og snyrtingu, sér þvottahúsi og tveimur inngöngum. Pallur og svalir snúa til suðurs.  


Eignin skiptist í anddyri, samliggjandi stofu og borðstofu, eldhús, þvottahús, geymslu og snyrtingu á neðri hæð, sjónvarpshol sem hægt er að breyta í svefnherbergi og fjögur svefnherbergi ásamt baðherbergi á efri hæð. 

**Búið að endurnýja þak**
**Búið að endurnýja glugga til suðurs**
**Eigandi sér um skipti á gluggum til norðurs ásamt nýrri útidyrahurð**


Nánari lýsing: 
Neðri hæð:
Anddyri er með flísar á gólfi og opnu fatahengi
Borðstofa og stofa er í opnu, björtu og rúmgóðu rými með útgengt út á timburpall og garð sem snýr til suðurs.
Eldhús er með upprunalegri innréttingu en búið er að skipta um fronta. 
Þvottahús og geymsla inn af því er með flísar á gólfi, nýlegri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og þar er bakdyrainngangur. 
Snyrting á neðri hæð er fyrir framan stiga, hún er rúmgóð með flísar bæði á gólfi og veggjum. 
Stigi milli hæða er járnstigi með timburþrepum og stór gluggi er í stigauppgöngu sem veitir mikla birtu.
Efri hæð:
Sjónvarpshol er opið rými með parket á gófli og þaðan er útgengt út á svalir til suðurs. Hægt er að loka rýminu með léttum vegg og útbúa fimmta herbergið á hæðinni. 
Svefnherbergi eru annars fjögur og eru tvö þeirra með fataskápum. Úr einu þeirra er lúga upp á milliloft.
Baðherbergi er upprunalegt með flísar á gófli og dúk á veggjum að mestu. Þar er innrétting í kringum vask með ágætu skápaplássi, handklæðaofn, baðkar með sturtutækjum og gluggi. 

Annað: 
-Þak endurnýjað í kringum 2010 (skipt um timbur og dúk og loftun bætt til muna)
-Skipt um glugga og svalahurðir á suðurhlið 2026
-Greitt hefur verið fyrir glugga og útidyrahurðir á norðurhlið 
-Útigeymsla við aðalinngang undir stiga 
-Innrétting í þvottahúsi ca. 5 ára gömul
-Hellulagt fyrir framan eign
-Frábær og vinsæl staðsetning, stutt í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði KA, verslun og ýmisskonar þjónustu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
olafur@byggd.is
greta@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 9
Skoða eignina Naustavör 9
Naustavör 9
200 Kópavogur
129.2 m2
Fjölbýlishús
413
928 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (401)
Fors , laugaborg .jpg
Skoða eignina Laugaborg (401)
Laugaborg (401)
105 Reykjavík
144.2 m2
Fjölbýlishús
423
1241 þ.kr./m2
179.000.000 kr.
Skoða eignina Álftaland 7
Skoða eignina Álftaland 7
Álftaland 7
108 Reykjavík
136.9 m2
Fjölbýlishús
313
876 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7D íb.004
Bílastæði
Opið hús:15. júlí kl 12:15-12:45
Eirhöfði 7D íb.004
110 Reykjavík
132.9 m2
Fjölbýlishús
32
1038 þ.kr./m2
137.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin