Fasteignaleitin
Skráð 9. okt. 2024
Deila eign
Deila

Norðurvellir 24

RaðhúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
184 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.500.000 kr.
Fermetraverð
540.761 kr./m2
Fasteignamat
83.800.000 kr.
Brunabótamat
100.700.000 kr.
Mynd af Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1982
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2090184
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
í lagi að sögn seljanda
Raflagnir
Í lagi að sögn seljenda
Frárennslislagnir
í lagi að sögn seljanda
Gluggar / Gler
í lagi að sögn seljenda
Þak
Í lagi að sögn seljenda
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu, Norðurvelli 24 í Reykjanesbæ, nánar tiltekið í Keflavík, fallegt og afar vel skipulagt raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsið stendur við horn á botnlanga og er endaraðhús. Bílskúrinn er stór og rúmgóður með millilofti og tengi fyrir hleðslustöð. Pallur er fyrir aftan húsið og heitur pottur og er garðurinn mjög fallegur og mikil vinna lögð í hann af eigendum. 

Húsið er skráð 184,5 m2 hjá HMS og þar af er bílskúrinn 22 m2

Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið hallgrimur@trausti.is.

Nánari lýsing eignar:

Komið er inná flísalagt rúmgott anddyri með fatahengi. Í anddyrinu er gestasnyrting og þaðan er innangengt í bílskúrinn 
Stofa og borðstofa eru með parket á gólfi, og skiptir afar fallegur hlaðinn arinn rýminu í stofu og borðstofu. 
Eldhús er með fallegri viðarinnréttingu og góðu vinnuplássi. Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsinu. 
Inn af borðstofu er stór og rúmgóð sjónvarpsstofa þaðan sem er útgengt út á viðarpall með heitum potti.
Hjónaherbergi er inn af sjónvarpsstofu, parket á gólfi og gott skápapláss.  
Tvö minni herbergi eru við hlið hjónaherbergisins og eru þau með parketi á gólfi og ágætlega rúmgóð. 
Baðherbergið með baðkari og sturtuklefa, upphengdu salerni og eru veggir flísalagðir ásamt gólfi. 
Stórt og rúmgott þvottahús er innan íbúðar og er gólf þess flísalagt. 
Í bílskúrnum er búið að koma fyrir millilofti og er gólf hans lakkað. 
Pallurinn og garðurinn eru í suður og eru skjólveggir við pallinn. 
Bílastæði og aðkoma eru steypt.


Hér er afskaplega vel skipulögð eign á ferðinni, á einni hæð og með rúmgóðum bílskúr, palli í suður og frábær staðsetning. Húsið hefur fengið reglulegt viðhald í gegnum tíðina. Eignir í þessu hverfi hafa stoppað stutt við í sölu. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kirkjuvegur 38
Bílskúr
Skoða eignina Kirkjuvegur 38
Kirkjuvegur 38
230 Reykjanesbær
214.1 m2
Einbýlishús
724
453 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 24
Bílastæði
Skoða eignina Asparlaut 24
Asparlaut 24
230 Reykjanesbær
163.1 m2
Fjölbýlishús
523
610 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 24
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Asparlaut 24
Asparlaut 24
230 Reykjanesbær
158.8 m2
Fjölbýlishús
312
652 þ.kr./m2
103.500.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 24
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Asparlaut 24
Asparlaut 24
230 Reykjanesbær
158.8 m2
Fjölbýlishús
32
652 þ.kr./m2
103.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin