Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 40fm sumarhús með fallegu útsýni á góðum stað við Meðalfellsvatn í Kjósarhreppi.
Sumarhúsið er byggt árið 1978 og stendur alveg niður við vatnið. Timburverönd sem snýr í suður og út að vatninu er umhverfis húsið. Bústaðurinn hefur tvö herbergi, stofu, eldhús og baðherbergi auk geymslu sem gengið er inn í að utanverðu. Rafmagn er í húsinu og búið er að taka inn hitaveitu. Kalda vatnið kemur úr uppsprettu á svæðinu.
Hér er um að ræða fallegan sælureit á góðum og eftirsóttum stað í aðeins um 30-40 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborginni. Lóðin sem er 1.000fm leigulóð er afar skjólsæl með miklum trjágróðri. Frábær staðsetning á fallegum og gróðursælum stað og liggur alveg niður að vatninu. Fasteignagjöld eru kr. 121.815.- pr. ár. Lóðarleiga er kr. 190.940.- pr. ár.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.