Fasteignaleitin
Opið hús:06. ágúst kl 18:30-19:00
Skráð 4. ágúst 2026

Baugakór 13

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
110 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
726.364 kr./m2
Fasteignamat
77.700.000 kr.
Brunabótamat
67.560.000 kr.
Byggt 2006
Jarðhæð af 5
Garður
Pallur
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2280281
Landnúmer
196992
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
sagt í lagi
Raflagnir
sagt í lagi
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega rúmgóð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð, verönd og stæði í lokaðri bílageymslu á frábærum stað við Baugakór í Kórahverfi Kópavogs. Íbúðin er með góðum innréttingum og fallegu harðparketi á gólfi. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, baðherbergi bæði með sturtu og baðkari, sér þvottaherbergi og stórt alrými með stofu og góðu eldhúsi, sér merkt stæði í bílakjallara og góð geymsla. Út frá stofu er gengið út á 25-30 m2 suður sérafnotaflöt sem girt er af með skjólveggjum. Grunnskóli, tveir leikskólar og tvær verslanir eru í stuttu göngufæri frá íbúðinni. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar: 

Gengið er að íbúðinni beint af bílastæðunum fyrir framan húsið og aðgengi að henni því sérlega gott. Sérinngangur er beint inn í íbúðina og því þarf ekki að fara í gegnum stigahúsið til að komast að henni. Farið er inn í stigahúsið til að fara niður að geymslugangi og bílakjallara. Lyfta er í stigahúsinu. 
Forstofa: Komið er inn i forstofu með flísum á gólfi og góðum eikar fataskáp sem nær upp í loft. Eikar hurð með gleri skilur á milli forstofu og alrýmis. Gengið er inn í þvottaherbergið frá forstofunni. 
Alrými: Setustofa, borðstofa, eldhús
Setustofa + borðstofa:
Þegar komið er inn úr forstofu er komið inn í gott hol og þaðan er svo gengið inn í stofu rýmið. Stofan og borðstofan eru samliggjandi í mjög rúmgóðu rými. Fallegt harðparket er á gólfi á holinu og inn í stofurnar og eldhúsið. Gengið er út á um 25-30 m2 sérafnotaflöt frá stofunni. Sérafnotareiturinn er afgirtur, hellur og gras er á gólffleti. 
Eldhús: Innrétting í eldhúsi er stór á tvo veggi í vinkil með efri og neðri skápum. Innréttingin er úr eik og nær upp í loft með dökkum flísum á milli efri og neðri skápa. Mikið skápapláss og gott vinnupláss. 
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með fallegum ljósum flísum á gólfi og á veggjum. Bæði er baðkar og sér sturta í rýminu. Góð eikar innrétting er undir vaskaborði og einnig á vegg við hlið spegils. Handklæðaofn er á vegg við baðkarið. 
Hol: Á milli hjónaherbergis og baðherbergis er hol sem hægt er að nýta sem til dæmis vinnuhol/skrifstofuhol. 
2 x svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö í eigninni. Bæði herbergin eru mjög rúmgóð með fallegu harðparketi á gólfum og góðum eikar fataskápum sem ná upp í loft. Herbergin eru 12,3 m2 og 14,3 m2. 
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi með glugga er innan íbúðar, inn af forstofunni. Flísar eru á gólfi og góð innrétting er á vegg. 
Geymsla: Í sameign er sér geymsla sem fylgir íbúðinni, 7,1 m2. 
Bílageymsla: Gott stæði fylgir íbúðinni í lokuðum bílakjallara. stæðið er rétt við innganginn inn í húsið. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/05/201630.950.000 kr.766.452.000 kr.2776.8 m2276.019 kr.Nei
08/09/200611.790.000 kr.22.700.000 kr.110 m2206.363 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2006
Fasteignanúmer
2280281
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.460.000 kr.
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hrísmóar 6
Opið hús:08. ágúst kl 13:00-13:30
Skoða eignina Hrísmóar 6
Hrísmóar 6
210 Garðabær
118.9 m2
Fjölbýlishús
312
702 þ.kr./m2
83.500.000 kr.
Skoða eignina Furugrund 79
Opið hús:06. ágúst kl 17:30-18:15
Furugrund 79.png
Skoða eignina Furugrund 79
Furugrund 79
200 Kópavogur
98.7 m2
Fjölbýlishús
514
805 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Grenihlíð 14
Skoða eignina Grenihlíð 14
Grenihlíð 14
550 Sauðárkrókur
128.7 m2
Raðhús
413
458 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 30
Skoða eignina Dalsbraut 30
Dalsbraut 30
260 Reykjanesbær
106.9 m2
Fjölbýlishús
41
654 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin