Fasteignaleitin
Skráð 7. jan. 2026
Deila eign
Deila

Mávahraun 8

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
187.5 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
132.500.000 kr.
Fermetraverð
706.667 kr./m2
Fasteignamat
134.900.000 kr.
Brunabótamat
89.250.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 1963
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Gæludýr leyfð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2077780
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt, sjá á ástandsyfirlýsingu endurnýjun.
Frárennslislagnir
Sjá á ástandsyfirlýsingu endurnýjun.
Gluggar / Gler
Sjá á ástandsyfirlýsingu endurnýjun.
Þak
Ekki upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Ofnar, að hluta endurnýjaðir
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Fasteignasali vill vekja athygli á sprungu sem er í burðarbitaopi svefnherbergisgangs.
Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Fallegt og fjölskylduvænt einbýlishús á einni hæð á eftirsóttum stað að Mávahrauni 8 í Hafnarfirði. Húsið er vel staðsett í fallegri bogadreginni götu. Eignin er samtals skráð 187,5 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands en þar af er bílskúr búinn gryfju skráður 30,0 fm. Eignin skiptist í anddyri/forstofu, skála, stofu, borðstofu, sólstofu, 3-4 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, búr, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr. Nýlegur geymsluskúr er í garðinumm ásamt því að geymsluloft nær yfir stóran hluta eignarinnar (hvorugt er skráð í heildarfermetratölu eignar). Rúmgóð innkeyrsla og gróinn garður umlykur húsið. Vegleg sólstofa (skráð 19fm.) með útgengi um rennihurð að verönd með heitum potti. Gróinn snyrtilegur garður með garðskúr og fánastöng.

Nánari lýsing:
Aðkoma: Fyrir framan eignina er snyrtileg aðkoma með grónum garði, bílskúr og mjög rúmgóðri innkeyrslu. Gengið er upp steyptar tröppur og við tekur anddyrið. 
Forstofa/anddyri: Rúmgóð forstofa er með flísum á gólfi og rúmgóðum loftháum fataskápum. Frá forstofu er innangengt í bílskúrinn.
Skáli/hol: Skáli með parketi á gólfi sem tengir saman flest rými eignarinnar. 
Sólskáli: Á teikningum er sólskálinn skráður sem Garðhús. Hann er upphitaður og skráður 19fm. Þaðan er útgengt á hellulagða verönd með skjólvegg og heitum pott.
Stofa/borðstofa: Frá holi/skála er opið að parketlögðum stofum með góðri lofthæð og stórum gluggum sem gera rýmið bjart og skemmtilegt.
Svefnherbergisgangur: Svefnherbergisgangur með innbyggðum skápum í enda gangs og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergi með parketi á gólfi og loftháum stórum fataskáp.
Svefnherbergi: Að auki hjónaherbergis er gert ráð fyrir þremur svefnherbergjum til viðbótar. Núverandi eigendur fjarlægðu vegg á milli tveggja herbergja og hagnýta herbergin sem sjónvarpsstofu. Auðvelt er að setja upp vegg og koma herbergjunum í fyrra horf. Parket er á öllum herbergjum.  
Baðherbergi: Baðherbergið hefur verið stækkað og endurnýjað og er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, búið fallegri hvítri innréttingu með dökkri borðplötu, góðu skápaplássi, upphengdu salerni, walk in sturtu, handklæðaofni og glugga með opnanlegu fagi. Innfelld led lýsing í hluta lofts.
Eldhús: Bjart eldhús með góðum borðkrók og fallegri nýlegri eldhúsinnréttingu. Búið helluborði, bakaraofni í vinnuhæð, gufugleypi og stæði fyrir uppþvottavél. Gluggi með opnanlegu fagi og parket á gólfi.
Geymsla/búr: Frá eldhúsi er innangengt í gott búr með góðu hilluplássi.
Þvottaherbergi: Innan af eldhúsi er þvottaherbergi með útgengi í garð.
Geymsla: Innan af þvottahúsi er hitakompa sem eigendur hagnýta sem geymslu.
Bílskúr: Bílskúrinn er skráður 30,0 fm. búinn gryfju, rafdrifnum hurðaopnara, gluggum, vask með heitu og köldu vatni. Inngangur er að geymslulofti sem nær yfir næstum allt húsið (rýmið virðist ekki vera skráð í fermetratölu eignar.). Bæði er hægt að ganga inn í bílskúrinn að baka til frá garði og einnig úr forstofu. 

Um er að ræða eign í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, fjölbreytta þjónustu og verslanir. Einnig er sutt í miðbæ Hafnarfjarðar og göngufæri í Bjarkarhúsið og Kaplakrika. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/05/201646.700.000 kr.55.000.000 kr.187.5 m2293.333 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1963
30 m2
Fasteignanúmer
2077780
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.250.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosabarð 1
Bílskúr
Skoða eignina Mosabarð 1
Mosabarð 1
220 Hafnarfjörður
177 m2
Einbýlishús
514
733 þ.kr./m2
129.800.000 kr.
Skoða eignina Austurgata 17
Skoða eignina Austurgata 17
Austurgata 17
220 Hafnarfjörður
228.3 m2
Einbýlishús
935
613 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 302
Strandgata 26 íb. 302
220 Hafnarfjörður
135.5 m2
Fjölbýlishús
413
996 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Vitastígur 12
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Vitastígur 12
Vitastígur 12
220 Hafnarfjörður
145.2 m2
Einbýlishús
423
922 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin