Valhöll fasteignasala Síðumúla 27 108 Reykjavík sími 5884477 kynnir: Efri hæðin í Brúarholti 5 í Ólafsvík er til sölu. Hæðin er skv. þjóðskrá alls 119,4 fm. Gengið er úr andyri upp parketlagðar tröppur á rúmgóðan pall. Þar er rými fyrir tölvuaðstöðu og einnig er þar góður skápur. Af pallinum er gengið inn á hol og úr því er gengið til þriggja herbergja, stofu, baðherbergis og eldhúss. Í holi er skápur. Á öllum rýmum er nýlegt parket sem og á eldhúsi er einnig parket og þar inni er ágæt innrétting. Baðherbergið er ný flísalagt með baði og handklæðaofni. Á hæðinni er líka rúmgott þvottahús og innaf því er geymsla. Úr stofunni er gengið út á góðar vestursvalir. Á austur og suðurhlið eru nýlegir gluggar og aðrir gluggar eru í góðu lagi samkv seljanda. Austur og suðurhlið hússins er með stálklæðningu sem farið er að láta á sjá. Vestur og norðurhliðar hússins voru nú í desember 2023 klæddar með hvítu báruáli.
Loftplata hússins er steypt og þar yfir er gott geymsluloft. Úr íbúðinni sem lítur mjög vel út er mjög gott útsýni í allar áttir. Stutt er í alla þjónustu ma heilsugæslustöð, leikskóla, grunnskóla, sund, kirkju og fleira.
ATH: EIGNIN VERÐUR LAUS 1. DESEMBER. VERÐ kr 31,5 millj
ATH ATH: Í Snæfellsbæ eru mjög góðir bæði leik og grunnskólar og einnig er öflugt starf hjá íþróttafélögunum. Þá er Fjölbrautarskóli Snæfellsnes í Grundarfirði en þangað er um 20 mín akstur.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarmaður fasteignasala í Ólafsvík í síma 893-4718 psj@simnet.is Allar almennar upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarsson löggiltur fasteignasali á Valhöll sími 588-4477. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.