Sveit í borg - Mjög fallegt og vel staðsett 183,9fm. einbýlishús á tveimur hæðum með sérstæðum bílskúr við Engjaveg í Mosfellsbæ. Um er að ræða finnskt einangrað bjálkahús sem stendur á 1.534 m2 eignarlóð sem einnig er jaðarlóð til austurs. Bókið einkaskoðun - skipti á ódýrari eign koma til greina.Hér getur þú skoðað eignina í 3 D Neðri hæð: Komið inn af verönd við inngang í rúmgóða
forstofu, frá forstofu er gengt áfram í
hol en einnig inn í rúmgóða
geymslu/þurrkherbergi og þaðan áfram inn í rúmgott
þvottahús með vinnuborði og miklu skápaplássi. Einnig er gengt frá eldhúsi í þvottahús (hringgengt).
Eldhús með fallegri innréttingu, borðplötur úr límtré, eyja með nýlegu spanhelluborði, mikið skápapláss, góð borðaðstaða og útgengi út á verönd til vesturs. Stór
stofa með mikilli lofthæð,
kamína í stofu, útgengi út á verönd. Innaf stofu er
herbergi, einnig með útgengi út á verönd, herbergið má t.d. nýta sem borðstofu eða svefnherbergi. Rúmgott
baðherbergi með upphengdu salerni, baðkari, walk in sturta, innrétting við vask, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum að mestu. Rúmgott
svefnherbergi með skápum.
Á gólfi forstofu, geymslu, þvottahúss og barðherbergis eru flisar, harðparket er á öðrum gólfum neðri hæðar. Hiti er í öllum gólfum neðri hæðar.Efri hæð: Frá stofu/holi liggur voldugur
stigi til efri hæðar með þrepum úr límtré.
Efri hæðin, sem er talsvert undir súð, samanstendur af mjög stóru
hjónaherbergi með lausum skápum, rúmgóðu
salerni, innrétting við vask, handklæðaofn, upphengt WC. Mjög stórt
alrými sem í dag er nýtt sem
vinnurými og mjög stórt
sjónvarpsrými, auðveldlega mætti bæta við svefnherbergi á efri hæð.
Öll gólf efri hæðar eru klædd borðum úr furu. Flestir gluggar hússins eru í frönskum stíl, flugnanet eru í öllum opnanlegum gluggafögum. Rúmgóður flísalagður bílskúr með rislofti, heitt og kalt vatn, hurð með rafmagnsopnun, steypt aðkeyrsla með hita í. Stór lóð með veröndum í suð - austur og norð-austur, geymslukúr og leiktæki á lóð, heitur pottur með pottastýringum í appi, fjarstýrður sláttuþjarkur fylgir. Öll útiljós eru með sólarsellu. Varmaskiptir fyrir neysluvatn, kalt vatn upphitað í heitt neysluvatn. Heimild er til að stækka/byggja við húsið þar sem húsið fyllir ekki uppí byggingarreit sbr. samþykki byggingarfulltrúa.
Einstök, frábærlega staðsett eign á friðsælum stað með alla helstu þjónustu höfuðborgarsvæðisins innan seilingar, sannkölluð sveit í borg sem sameinar kyrrð sveitasælunnar og þægindi borgarlífsins. Leikskólinn Reykjakot er í göngufæri, skólabíll og strætó ganga þaðan í gunnskóla bæjarins.
Frekari upplýsingar veitir:
Kristinn Tómasson Viðskiptafr. MBA
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Gsm. 820-6797, kristinn@hofdi.is