Laufás 4 um er að ræða fallega eign í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr og góðum garði. Íbúðin er skráð 106,8 fm samkvæmt fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðarhlutinn 77,2 fm og bílskúrinn 29,6 fm.
Garðinum hefur verið skipt upp með eignaskiptasamningi og fylgir því afar gott og afmarkað útisvæði þessari eign. Núverandi eigendur hafa lagt mikla vinnu í endurbætur á eigninni að innan og er hún afar snyrtileg og vel umgengin.Nánari lýsing eignarinnar:Komið er inn í forstofu og þaðan er gengið inn í herbergi sem nú er nýtt sem skrifstofa. Eigendur hafa útbúið milliloft í herberginu sem nýta mætti sem gestarúm eða geymslu.
Úr herberginu er útgengt út í garð eignarinnar.
Fallegur stigi leiðir upp í rúmgott alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhúsið býður upp á gott skápa- og vinnupláss.
Á hæðinni eru tvö svefnherbergi, þar af er hjónaherbergi með rúmgóðum fataskápum sem ná yfir heilan vegg.
Baðherbergið er með fallegri innréttingu, „walk-in“ sturtu, upphengdu salerni og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Garðurinn er rúmgóður og skiptist í stóra grasflöt og verönd/pall sem býður upp á góða möguleika til útivistar.
Bílskúrinn er staðsettur við hlið verandarinnar og setur punktinn yfir i-ið á þessari skemmtilegu eign.
Samkvæmt upplýsingum frá eigendum hafa eftirfarandi framkvæmdir verið framkvæmdar á undanförnum árum:2023-2026
Raflagnir:
Öll öryggi og legaliði í töflu endurnýjað ABB og öryggjum fjölgað
Dregið fyrir nýju 3. Fasa rafmagni
Ídráttarrörum komið fyrir úr íbúðarhúsi í Bílskúr
Raflagnir endurnýjaðar að hluta
Rafmagnsvírar endurnýjaðir að mestu leyti og eldri vírar yfirfarðir
Allar innstungur og rofar endurnýjað
Dimmerar í Eldhúsi
Snjallperur á baði og svefnaherbergi
Athugasemd: Raflagnir í vegg í Eldhúsi og Hjónaherbergi, kynna næstu eigendum.
Ný led-útiljós í garði ásamt útitengil á bílskúr (á eftir að tengja við sólúr, en það er til)
Pípulagnir:
Skolpstammi fóðraður að láréttum lögnum sem voru endurnýjaðar 2002
Frárennslislagnir endurnýjaðar úr eldhúsi og baðherbergi
Gólfhiti á baðherbergi og handklæðaofn
Gólhiti í herb. 1. Hæð (skrifstofa)
Gólfhiti í andyrri
Úti krani með þrívíðaloka settur á bílskúr
Ofn endurnýjaður í bílskúr
Ofnalögn frá húsi í bílskúr endurnýjuð
Kúlulokum komið fyrir á allar lagnir innan íbúðar til þess að bæta aðgengi
Klósett, vaskur og blöndunartæki endurnýjað með vegghengdu Grohe klósetti, Grohe sturtutæki og Mora blöndunartæki í vaski
Vaskur færður úr þvottahúsi sem var breytt og færður yfir í bílskúr.
Ný drenlögn komið fyrir við nýjan stoðvegg og meðfram austurgafli bílskúrs
Innra skipulag:
Íbúðin var öll máluð 2024 Hrímhvítt og Marmarahvítt
Ný ljós á báðum hæðum.
2 hæð:
Léttir innveggir fjarlægðir í norðurenda og styrkingar settar á þaksperrur
Gólf á efri hæð flotuð að hluta
Gólf á neðri hæð styrkt og flotuð
Gólfefni á efri hæð endurnýjað með fljótandi vínilparketi og frágengið með silicon í stað gólflista
Búr fjarlægt og baðherbergi stækkað með innangengni sturtu
Nýir Innveggir að hluta (gifs og 9mm krossviður)
Cat5 kapall dregin á neðri hæð
Ný eldúsinnrétting með steyptri borðplötu og epoxy lökkuð (2024)
Innbyggð Eldhústæki mile bakaraofn, span helluborð og innbyggður ískápur (2024)
Eldhús flísalagt og gegnheil eikarhilla með innbyggðri dimmanlegri led lýsingu
Innbyggður fataskápur með lýsingu og rennihurðum nýr í hjónaherbergi (2024)
Skóskápur í forstofu og fataskápur í herbergi 1. Hæð
Baðherbergi flísalagt gólf, veggi og sturta (2024)
1 hæð:
Gólfefni í herb. 1. Hæð endurnýjað með fljótandi vínilparketi og frágengið með silicon í stað gólflista
Gólf í forstofu flotað og gólfhiti (2026)
Gólfefni í andyrri endurnýjað með flísum (2026)
Stigi jafnaður og teppalagður (2026)
Geymsluloft sett upp
Eldri stál neysluvatnslagnir aftengdar fyrir ofan stiga og stigaop hækkað.
Þak:
Járn málað á þaki 2025
Gluggar og hurðir:
Hurð út í garð fjarlægð og fals stækkað til þess að koma fyrir löglegri svalarhurð og glugga með opnanlegu fagi.
Allar innihurðar Sprautulakkaðar
Innihurða karmar og gerefti teknir úr og lakkaðir og settir aftur í.
Inni-hurðahúnar pússaðir og lakkaðir
Garður:
Stoðveggur steyptur á milli lóða Laufás 2 & 4 (2025)
Skjólveggur endurnýjaður (2025)
Steypt plata á milli bílskúrs og íbúðar
Bílskúr:
Einangrunarplast (75mm) við sökkul í austurenda
Ræstivaskur og gólfniðurfall er í bílskúr
Skúr rykhreinsaður og þrifamálaður (2025)
Að utan:
Ný útiljós á húsi
Einhverjar smávægilegar múrviðgerðir voru gerðar á húsinu (2024)
Athugasemd:
Íbúðin er vel skipulögð með sér inngang, björt með miklu útsýni og stórum garði með mikla möguleika.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is