ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Sjávarborg 4, 190 Vogar, birt stærð 91.4 fm.Einstaklega vandað og vel skipulagt raðhús á einni hæð með mikilli lofthæð. Húsið stendur í Sjávarborg, nýju hverfi í uppbyggingu í Vogum með glæsilegu sjávarútsýni. Mikil lofthæð og gólfsíðir gluggar gefa alrýminu bjart og opið yfirbragð. Eignin afhendist með innbyggðum tækjum í eldhúsi.
- Afhending við kaupsamning
- 3 svefnherbergi auk geymslulofts sem nýta má sem svefnloft
- Allt að um 4 metra lofthæð í stofu
- Gólfsíðir gluggar í alrými
- Gólfhiti með Danfoss stýrikerfi
- Sólpallur úr lerki með skjólvegg milli húsa
Nánari upplýsingar veita:
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.isNánari lýsing eignarForstofa: Flísar á gólfi og rúmgóðir fataskápar. Hurð úr forstofu inn á gang.
Stofa og borðstofa: Opið og bjart alrými með eldhúsi. Lofthæðin nær um fjórum metrum á hæsta punkti og setur mikinn svip á rýmið. Innfelld lýsing er að hluta til. Úr stofu er gengið út á sólpall.
Eldhús: Opið við stofu. Innréttingin er úr ljósgráu melamíni frá Parka með svartri quartz-borðplötu. Spanhelluborð, bakarofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti fylgja.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum. Í hverju þeirra er fataskápur í sama lit og efni og eldhúsinnréttingin.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með 60×60 cm flísum. Þar er upphengt salerni, sturtuklefi og innrétting við vask með ljúflokun á skúffum, auk tengis fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsluloft: Fyrir ofan baðherbergi, með parketi á gólfi. Stigi upp á loftið fylgir. Loftið má einnig nýta sem svefnloft.
Frágangur innanhússÁ gólfum er vandað 8 mm harðparket frá Parka (Light Cracket Oak) og flísar í forstofu og á baðherbergi. Innveggir eru úr timburgrind klæddri plötum og uppfylla kröfur um hljóðeinangrun milli herbergja. Innihurðir eru hvítar og yfirfelldar frá Parka. Rimlagluggatjöld eru fyrir öllum gluggum.
Lóð og umhverfiLóðin er tyrfð. Við bakhlið er sólpallur úr lerki með skjólvegg milli húsa. Stétt og bílastæði við aðkomuhlið eru hellulögð og snjóbræðsla er í gangstétt. Bílastæði er fyrir framan hvert hús.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.