Fasteignaleitin
Skráð 21. júlí 2025
Deila eign
Deila

Reynihvammur 41

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
219.3 m2
4 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
137.000.000 kr.
Fermetraverð
624.715 kr./m2
Fasteignamat
137.150.000 kr.
Brunabótamat
95.400.000 kr.
Byggt 1963
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2064793
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
endurbætt
Raflagnir
endurbætt
Frárennslislagnir
endurbætt
Gluggar / Gler
þarfnast endurbóta
Þak
þarfnast endurbóta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður -
Lóð
100
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Fasteignin þarfnast nákvæmnar skoðunar og endurbæta þarf nokkra þætti. 
Bogi Molby Pétursson fasteignasali og Lind fasteignasala kynna til sölu:  Vel staðsett 2ja hæða hús, austast í gömlu suðurhlíðum Kópavogs, rétt við Digraneskirkju. Húsið er í dag á tveimur fastanúmerum og er samtals 219,3 fm að meðtöldum 36,1 fm bílskúr, sem tilheyrir efri hæðinni. Tvær fjögurra herbergja íbúðir eru í húsinu, samtals 6 svefnherbergi, en auk þess var bílskúrinn áður innréttaður sem íbúð. Húsið stendur á 684 fm lóð.
Núverandi eigandi eignast húsið 2007, breytir innra skipulagi þess og skiptir því upp í tvö fastanúmer. Að sögn eiganda var þá einnig farið í töluvert viðhald á báðum íbúðum m.a. voru frárennslislagnir endurnýjaðar að mestu, sem og vatnslagnir, bæði heitt og kalt, og einnig rafmagnið að mestu leiti. Þá voru settir nýjir ofnar. 

Komið er að viðhaldi á ytra byrði hússins, gluggum, glerjum, þaki, þakkanti og bílskúrsþaki.  Lekkaskemmdir í bílskúr

Efri hæðin er 90,2 fm fjögurra herbergja íbúð, en auk þess fylgir bílskúrinn henni. Gengið er upp tröppur á suður hlið hússins og gengið inn um aðalinngang af stigapalli, sem er samtengdur suður svölum. Forstofa, þrjú svefnherbergi, stór stofa og baðherbergi. Eldhús og glerskáli/borðstofa, mynda saman fallegt rými með útsýni yfir Kópavogsdalinn. Svefnherbergin liggja saman í norðurhluta íbúðarinnan er sunnan megin er stofan og glerskálinn en hann er nýttur fyrir borðstofu. Forstofan er með flísum á gólfi og þar er stór fallegur fataskápur. Baðherbergið flísalagt, vegghent salerni og opnanlegur gluggi. Á öðrum rýmum hæðarinnar er fallegt parket á gólfum.

Neðri hæðin er 93 fm og hún er skráð sem kjallari. Þar er fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi á framhlið hússins. Forstofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofa og geymsla innan íbúðar. Að auki fylgir íbúðinni köld geymsla undir útidyratröppum, sem er inn í fermetratölu íbúðarinnar. Eldhúsið er rúmgott og þar er stór eldhúskrókur. Frístandandi eldavél og háfur fyrir ofan. Baðherbergið er með góðri sturtu, vegghengdu salerni og innréttingu undir vaski. Stofan er björt og opið er inn í eldhúsið. Svefnherbergin eru þrjú, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Geymslan, sem er innan íbúðar er nýtt sem þvottahús. Parket er á gólfum íbúðarinnar en flísar eru á gólfum forstofu og inn á svefnherbergisgang, baðherbergi og geymslu/þvottahúss. 

Bílskúrinn er 36,1 fm að stærð og tilheyrir efri hæðinni. Innréttuð var íbúð íbúð í bílskúrnum en ekki er búið í henni í dag. Þakið á skúrnum hefur ekki fengið nauðsynlegt viðhald síðustu árin og það lekur. Ástæðan er sú m.a. að eigandi ætlaði sér alltaf að fá heimild til þess að stækka efri hæðin með því að byggja ofaná skúrinn og það tók því ekki að skipta um þak á skúrnum. 
Garðurinn er fyrir framan og aftan húsið og upp með vestur hlið þess. Lóðin 684 fm. Við austurhlið hússins er land í eigu Kópavogsbæjar og göngustígur sem liggur í austur, fyrir ofan Digraneskirkju. Að mestu óhindrað útsýni niður í Kópavogsdalinn. Lóðin er í sameign beggja hæða en efri hæðin hefur sérafnot af stæðinu fyrir framan bílskúrinn.

Vel staðsett hús með tveimur fjögurra herbergja íbúðum, á besta stað í gömlu Suðurhlíðum Kópavogs.   Ytra byrði hússins þarfnast athugunar.   íbúðirnar voru endurnýjaðar 2007 0g 2008. 

Seljendur/Kaupendur mínir fá Vildarkort Lindar.  Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum:  Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og vodafone

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:   Bogi Molby Pétursson  6993444 / Molby@fastlind.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég verðmet eignina þína.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900.kr


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/09/200633.440.000 kr.41.000.000 kr.220.1 m2186.278 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1963
36.1 m2
Fasteignanúmer
2064793
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.300.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Lind fasteignasala ehf
https://www.fastlind.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skjólbraut 12
Bílskúr
Skoða eignina Skjólbraut 12
Skjólbraut 12
200 Kópavogur
253.5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
925
572 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Helgubraut 17
Auka íbúð
Skoða eignina Helgubraut 17
Helgubraut 17
200 Kópavogur
248.3 m2
Raðhús
826
559 þ.kr./m2
138.900.000 kr.
Skoða eignina Litlavör 3
Opið hús:05. ágúst kl 17:30-18:00
Skoða eignina Litlavör 3
Litlavör 3
200 Kópavogur
180.2 m2
Parhús
513
819 þ.kr./m2
147.500.000 kr.
Skoða eignina Kársnesbraut 83
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:09. ágúst kl 12:00-13:00
Skoða eignina Kársnesbraut 83
Kársnesbraut 83
200 Kópavogur
177 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
514
706 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin