Jóhannes E. Levy löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu:
Vel skipulögð og frábærlega staðsett þriggja herbergja 82,6 m
2 íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Jaðarleiti 8 í Reykjavík. Mikið útsýni og góð hljóðvist, gluggarnir á suðurhliðinni eru með ekstra hljóðeinangrandi gleri. Um er að ræða einstaklega vandaða íbúð á frábærri staðsetningu í miõbæ Reykjavíkur. Yfirbyggðar svalir sem snúa til vesturs og suðurs. Gólfhiti er í allri íbúðinni og aukin lofthæð. Rúllugardínur í gluggum og stílhrein kubbaloftljós fylgja eigninni. Sér geymsla í kjallara er einnig með mikilli lofthæð.
Nánari lýsing íbúðarinnar:Komið er inn í
anddyri og gang með góðum fataskápum, harðparket er á gólfum sem flæðir inn í herbergin og alrýmið.
Rúmgott
hjónaherbergi með góðum fátaskápum yfir heilan vegg, auka
herbergi við hliðina á því.
Baðherbergi er flísalagt með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og walk-in sturtu.
Hvítar innréttingar og hurðar eru í allri íbúðinni. Gólfsíðir gluggar í stofu og hjónaherbergi.
Eldhús er snyrtilegt með L-laga hvítri innréttingu með innbyggðum ísskáp, aðliggjandi
stofa með útgengi á svalirnar.
Skjólgóðar
svalir með svalalokun sem snúa til vesturs og suðurs.
Jaðarleiti 8 er vandað fjöleignarhús sem er viðhaldslétt, einangrað að utan og álklætt. Frábært útsýni yfir fossvogin og alveg suður á Reykjanesið. Staðsetning er miðsvæðis og stutt er í alla þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir
Jóhannes E. Levy, löggiltur fasteignasali.
í síma
7721050 eða
tölvupósti