Fasteignaleitin
Skráð 12. jan. 2026
Deila eign
Deila

Bræðraborgarstígur 24

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
80.7 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.000.000 kr.
Fermetraverð
842.627 kr./m2
Fasteignamat
78.050.000 kr.
Brunabótamat
43.900.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1906
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2001119
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Í lagi að því best er vitað
Raflagnir
Í lagi að því best er vitað
Frárennslislagnir
Lagnir myndaðar 2020 Plastlagnir í fínu lagi. Lögn frá lóðarmörkum út í götu fóðruð við samskeyti.
Gluggar / Gler
Skipt um gler á neðri hæð að undanskildu baðherbergi. Móða í gleri í öðru herberginu í risherbergi
Þak
Eldra þak. Viðgert og málað 2020
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sameiginleg viðarverönd í garði
Lóð
63,91
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
Á íbúð (0001) hvílir sú kvöð að "íbúar eignar (0101) verða að hafa aðgang að vatnsinntaki fyrir íbúð (0101) sem staðsett er í íbúð (0001) í herbergi við hliðina á inntaksklefa, ef þeir þurfa að geta skrúfað fyrir vatnið". Ekki er vitað um neinar kvaðir á lóð.
Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna 80.7 fm (gólfflötur töluvert meiri), 5 herbergja hæð og ris með sérinngangi ásamt sérmerktu bílastæði í tvíbýlishúsi vinsælum stað í gamla Vesturbænum. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, geymslurými undir stiga, eldhús, samliggjandi borðstofu og stofu á aðalhæð. Aukin lofthæð er á aðalhæðinni og falleg gluggasetning. í risi eru 2 barnaherbergi, gangur og geymsla undir súð.

Húsið stendur á fallegri og gróinni 227,1fm eignarlóð. Tvö bílastæði eru á lóðinni, bílastæðið sem er nær húsinu tilheyrir íbúð í kjallara en bílastæðið sem er fjær húsinu tilheyrir íbúð á fyrstu hæð. Fyrir aftan hús er sameiginlegur sólríkur garður með sameiginlegri viðarverönd. Í garði er kaldur geymsluskúr sem tilheyrir efri hæðinni skv. hefð. 

Nýlega varð vart um veggjatítlur í þakvið hússins sem þarf að uppræta með meindýraeyði. Ástandsskýrsla fylgir með söluyfirliti.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Eignin Bræðraborgarstígur 24 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-1119, birt stærð 80.7 fm. Nettó gólflötur eignar er 92,8fm skv. fasteignaskráningu.

Framkvæmdir undanfarinna ára:
2019:

Hitagrind tekin í gegn (ofnakerfi) 
2020: 
Hús málað að utan, múrviðgert og gert við þak. 
Lagnir myndaðar. Plastlagnir í fínu lagi. Lögn frá lóðarmörkum út í götu fóðruð við samskeyti. 
2021:
Þakrennur endurnýjaðar.

Eignin skiptist í:
Aðalæð:
Anddyri, baðherbergi, geymsla undir stiga, hjónaherbergi, samliggjandi eldhús, borðstofa og stofa.
Rishæð: 2 barnaherbergi, gangur og geymsla. 

Nánari lýsing eignarinnar:
Hæð:

Anddyri: Gengið inn um sérinngang. Flísar á gólfi, fatahengi. Stigi úr forstofu upp í rishæð.
Baðherbergi: Uppgert fyrir um 10 árum. Flísar á gólfi og stórum hluta veggja. Upphengt salerni, baðkar með sturtu, handklæðaofn, vaskur og spegill fyrir ofan vask. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Innbyggður skápur.
Hjónaherbergi: Rúmgott með innbyggðum opnum fataskáp.
Eldhús: Falleg upprunaleg innrétting með góðu skápaplássi. Samliggjandi borðstofu.
Borðstofa: Samliggjandi eldhúsi og stofu.
Stofa: Samliggjandi og opin inn í borðstofu. 

Ris:
Barnaherbergi I: Viðarplankar á gólfi, rennihurð.
Barnaherbergi II: Parket á gólfi, stór gólfflötur.
Geymsla/herbergi: Parket á gólfi á gólfi, undir súð. Lofthæð í hæsta punkti ca. 175cm.

Lóðin er 227,1 m² eignalóð við Bræðraborgarstíg 24 í Reykjavík, á lóðinni stendur mhl. 01 við Bræðraborgarstig 24. Tvö bílastæði eru á lóðinni, bílastæðið sem er nær húsinu tilheyrir íbúð í kjallara en bílastæðið sem er fjær húsinu tilheyrir íbúð á fyrstu hæð. Kaldur viðarskúr stendur á vesturenda í garði og tilheyrir hann efri hæð skv. hefð.

Sameign allra Í matshluta 01 er í sameign allra, inntök (0002) tröppur (0003) og sorp (0004) í kjallara, einnig tröppur (0102) á fyrstu hæð. Einnig er í sameign allra allt ytra byrði hússins. Eignahlutar skiptast eftir hlutfallstölu sameignar allra. Eignahlutfall eignar er 63,91%.

Hita og rafmagnskostnaður Í húsinu er einn hitamælir og skiptist kostnaður eftir hlutfallstölu hitakostnaðar. sameignarrými (0002) er ekki upphitað, geymsla (0201) er ekki upphituð. Hitamælir er staðsettur í inntaksklefa (0002). Íhúsinu eru tveir rafmagnsmælar þ.e. einn fyrir hvora séreign.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasali í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/12/202046.350.000 kr.52.500.000 kr.80.7 m2650.557 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringbraut 99
Skoða eignina Hringbraut 99
Hringbraut 99
101 Reykjavík
79.3 m2
Fjölbýlishús
312
818 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Grettisgata 32
Opið hús:18. jan. kl 14:00-15:00
Skoða eignina Grettisgata 32
Grettisgata 32
101 Reykjavík
88.3 m2
Fjölbýlishús
312
764 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V3 - íbúð 102
Vesturvin V3 - íbúð 102
101 Reykjavík
66.7 m2
Fjölbýlishús
211
1045 þ.kr./m2
69.700.000 kr.
Skoða eignina Vesturgata 53
Skoða eignina Vesturgata 53
Vesturgata 53
101 Reykjavík
72.8 m2
Fjölbýlishús
212
891 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin