Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: Bjarkargrund 1, einbýlishús á einni hæð
SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN
Eignin er staðsett í rólegri götu og er stutt frá Grundaskóla, leikskólum, íþróttamannvikjum, golfvellinum og Langasandi.
Einbýlishús á einni hæð, íbúð 155,3 fm bílskúr 22,8 fm Samtals 178 fm.
Hellulagt bílastæði að húsi hitað upp með affalli að hluta
Forstofa, flísar á gólfi, hengi og skápur
Eldhús, borðstofa og stofa með parketi á gólfum
Eldhús endurnýjað 2020
Rúmgóð borðstofa og stofa með dyr út á suðursólpall með heitum potti.
Herbergisálma: harðparket á gangi og herbergjum
3-4 svefnherbergi, skápur í einu.
Baðherbergi, flísar á gólfi og fíboplötur á veggjum, baðkar og góð innrétting.
Rúmgott þvottahús sem tengir hús og bílskúr saman.
Þvottahús, dúkur á gólfi, sturtuaðstaða, skolvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Innangengt úr forstofu í bílskúr, flísar á gólfi og gott skápapláss.
Herbergi með parkt á gólfi
Bílskúr, hiti og rafmagn. (hægt að stækka bílskúrinn með því að sameina bakforstofuna og herbergið)
Endurnýjað af seljanda:
rafmagnspottur 2019
15 fm garðkofi 2020
Neysluvatn og varmaskiptir 2020
Eldhús og parket 2020
Hús og þak málað og yfirfarið 2022
Settir nýjir gluggar í allt húsið 2020-2022
Um er að ræða mjög fallegt og vandað hús á góðum stað.
Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is / sími 861-4644
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.