Fasteignaleitin
Opið hús:26. júní kl 16:00-17:00
Skráð 19. júní 2026

Grund II

SumarhúsNorðurland/Akureyri-605
108.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
59.000.000 kr.
Fermetraverð
542.279 kr./m2
Fasteignamat
26.300.000 kr.
Brunabótamat
55.850.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2158682
Landnúmer
217118
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Til suðurs
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Húsið var áður tvær íbúðir og ummerki sjást um fyrri skiptingu á gólfi í forstofu sem og í eldhúsi neðri hæðar.
Hluti flísa eru lausar í sturtu annars baðherbergis neðri hæðar.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Sumarhús í fallegu skógi vöxnu umhverfi við Grund í Eyjafjarðarsveit ásamt 4 sumarhúsalóðum í kring.  Húsið er skráð 108,8 m² en nýtanlegir fermetrar eru töluvert fleiri undir súð.


Húsið er timburhús með skráð byggingarár 1985 á einni hæð auk riss.  Húsið er skráð á tvö fastanúmer og sem tvær íbúðir en nýtist sem ein heild í dag en auðvelt er að útbúa útleigurými úr hluta hússins.
Húsið skiptist með eftirarandi hætti;
- Hæðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi og á öðru þeirra er þvottaaðstaða. 
Risið skiptist í eitt rúmgott herbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsinnréttingu.

Forstofa/aðalinngangur er á austurhlið hússins og er rúmgóð og flísalögð.
Eldhúsið er einnig rúmgott og þar eru flísar á gólfi og svört eldhúsinnrétting.
Stofan er með flísum á gólfi og úr stofu er stigi upp í ris.
Baðherbergin er þrjú.  Baðherbergi neðri hæðar eru flísalögð, með spónlögðum viðarinnréttingum og flísalögðum sturtum.  Baðherbergi efri hæðar er með flísum á gólfi, sturtu og spónlagðri viðarinnréttingu.
Svefnherbergin eru tvö á neðri hæðinni og eru bæði með flísum á gólfi og fataskápum.  Rúmgott herbergi er einnig í risi hvar stigi á milli hæðar kemur upp og þar er parket á gólfi.
Alrými efri hæðar er í suðurhluta riss og þar er parket á gólfi og ljós eldhúsinnrétting.  Útgangur er á svalir til suðurs og þaðan er stigi niður í garð.  Sá möguleiki er fyrir hendi að vera með sér útleigurými á hluta hæðarinnar eða henni allri, með sérinngangi.
Steypt verönd er sunnan við húsið og timburverönd við austurhlið.

Landið
Aðkoma að landinu er frá Eyjafjarðarbraut vestari, skammt norðan og ofan við Grund sem er í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri.  Húsið stendur á tveimur eignarlóðum sem samtals telja 2.600 m².    Auk lóðanna tveggja er búið að skipuleggja 5 aðrar eignarlóðir í kring sem hver um sig er skráð 1.300 m² að stærð og fjórar þeirra fylgja með við sölu.  Þessar 6 lóðir telja samtals 7.800 m² auk þess sem með í kaupunum myndi fylgja 85,7% hlutur í 8.900 m² landi sem liggur að lóðunum.  Töluverður skógur er á landinu og íbúðarhúsið er nánast umlukið trjám.  Svæðið er skemmtilega í sveit sett, í fallegu umhverfi og þægilegri akstursfjarlægð frá Hrafnagili og Akureyri.

Annað
- Hitaveita er í húsinu.
- Rafmagnstafla var endurnýjuð 2016.
- Þakrennur voru endurnýjaðar 2025
- Húsið var töluvert endurnýjað árið 2016 og þá breytt úr tveimur íbúðum í eina.
- Húsið var flutt á staðinn frá Reykjavík. Það var áður tónlistarkennslurými fyrir Tónskóla Sigursveins, byggt árið 1977.
- Samanlagt fasteignamat húss og lóða er kr. 60.770.212.-

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1985
54.4 m2
Fasteignanúmer
2158681
Byggingarefni
Timbur
Húsmat
25.990.000 kr.
Lóðarmat
1.060.000 kr.
Fasteignamat samtals
27.050.000 kr.
Brunabótamat
28.550.000 kr.

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Torfufell 33
Skoða eignina Torfufell 33
Torfufell 33
111 Reykjavík
56.8 m2
Fjölbýlishús
211
879 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 6
Skoða eignina Suðurhella 6
Suðurhella 6
221 Hafnarfjörður
99.2 m2
Atvinnuhúsn.
615
493 þ.kr./m2
48.900.000 kr.
Skoða eignina Asparfell 6
Skoða eignina Asparfell 6
Asparfell 6
111 Reykjavík
93.6 m2
Fjölbýlishús
312
704 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Ferjubakki 2
Opið hús:21. júní kl 12:00-13:00
Skoða eignina Ferjubakki 2
Ferjubakki 2
109 Reykjavík
101.5 m2
Fjölbýlishús
413
689 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin