Fasteignaleitin
Skráð 19. mars 2026

Fiskislóð 45

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
110.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
724.388 kr./m2
Fasteignamat
43.350.000 kr.
Brunabótamat
38.900.000 kr.
HJ
Helgi Jóhannes Jónsson
Fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2296868
Landnúmer
174393
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
12
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali kynna :
Mjög falleg 110,3fm (skráð 86,8fm samkv. HMS) þriggja herbergja atvinnuhúsnæði sem innréttað hefur verið sem glæsileg "loft" íbúð. Mjög mikil lofthæð er í rýminu. Stórt milliloft er opið að hluta yfir alrýmið. Mjög stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn í alrýmið. Eignin er vel staðsett á Grandanum í göngufæri við alla helstu þjónustu og örstutt að rölta í miðbæinn. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali
í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

NÁNARI LÝSING :

Komið er inn um sameiginlegan inngang með jarðhæðinni og er rúmgóður stigi upp í eignina. Þegar komið er upp í hol með miklu skápaplássi, parket á gólfi.
Mjög rúmgott og bjart alrými með mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum, parket á gólfi. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu, innbyggð uppþvottavél, flísar á milli skápa, eyja sem snýr að alrýminu og er parketlagt líkt og alrýmið. Rúmgott herbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi með sturtu, innréttingu við vask, stór innrétting á vegg með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi og veggjum. Frá alrými er teppalagður stigi upp á milliloftið sem er stórt og rúmgott með þakgluggum sem hleypa mikilli birtu inn í rýmið, opnanlegur þakgluggi er á þessu rými, fataskápar. parket á gólfi. Milliloftið er opið að hluta við alrýmið.
Húsið er klætt að utan með álklæðningu og er því viðhaldslítið. Í húsinu er fullkomið brunavarnarkerfi (sprinkler) og hafa brunavarnir verið teknar út af slökkviliði og húsfélagið er með samning um brunavarnafulltrúa fyrir húsið allt. Ný eignaskiptayfirlýsing er tilbúin fyrir húsið en henni hefur ekki verið þinglýst en í þeirri yfirlýsingu er íbúðin skráð 110,3fm. Gólfhiti er í íbúðinni.
Eignin er mjög vel staðsett í "New York" stíl nálægt miðborginni og í göngufæri við alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/02/201924.650.000 kr.45.000.000 kr.86.8 m2518.433 kr.
28/09/201211.320.000 kr.15.000.000 kr.86.8 m2172.811 kr.
15/03/201112.020.000 kr.23.000.000 kr.165.4 m2139.056 kr.Nei
09/05/20076.885.000 kr.31.700.000 kr.165.4 m2191.656 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kristnibraut 95
Bílastæði
Opið hús:22. mars kl 13:00-13:30
Skoða eignina Kristnibraut 95
Kristnibraut 95
113 Reykjavík
110.7 m2
Fjölbýlishús
413
722 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Tryggvabraut 24 -Til leigu 50 fm.
Tryggvabraut 24 -Til leigu 50 fm.
600 Akureyri
50 m2
Atvinnuhúsn.
1
Tilboð
Skoða eignina Tryggvabraut 24 - Til leigu 175 fm.
Tryggvabraut 24 - Til leigu 175 fm.
600 Akureyri
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Skoða eignina Lambamýri 2
Bílastæði
Opið hús:19. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Lambamýri 2
Lambamýri 2
225 Garðabær
74.6 m2
Fjölbýlishús
312
977 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin