Fasteignaleitin
Skráð 4. ágúst 2025

Laugavegur 168 íb606 Heklureitur

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
98.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
121.900.000 kr.
Fermetraverð
1.238.821 kr./m2
Fasteignamat
40.750.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2529805
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
06
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG Kynnir: Glæsileg 3 herbergja íbúð með hjónasvítu og bílastæði í bílakjallara. Íbúð merkt:606, sem skilast fullbúin án gólfefna. Alls er eignin 98,4 fm að stærð ásamt geymslu á 6. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 88,6 fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi m/eyju, borðstofu og stofu með útgengi út svalir. Hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi, svefnherbergi með loftháum skápum, baðherbergi með vandaðri innréttingu og tækjum ásamt þvottaaðstöðu og sér geymsla í sameign merkt: 0026, skráð 9,8 fm, og bílastæði merkt: B19. Hönnunarþema íbúðar er Bjarmi með mistral borðplötum (sjá mynd).   Allar nánari upplýsingar, teikningar ásamt skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Aðalsteinn Bjarnason, lögg. fasteignasali í GSM: 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is  

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Heklureiturinn. 
Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu.

Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur.

Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025.
Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað.

Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens. 

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Skipulag:
Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168.

Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.

Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

Hönnun:
Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2529805
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
9
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lundarbrekka 16
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
Skoða eignina Lundarbrekka 16
Lundarbrekka 16
200 Kópavogur
107.6 m2
Fjölbýlishús
514
716 þ.kr./m2
77.000.000 kr.
Skoða eignina Garðatorg 2
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 12:00-12:30
Skoða eignina Garðatorg 2
Garðatorg 2
210 Garðabær
143.3 m2
Fjölbýlishús
322
1011 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19 (701) ÞAKÍBÚÐ
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Hringhamar 19 (701) ÞAKÍbúð
221 Hafnarfjörður
135 m2
Fjölbýlishús
322
962 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19 (701) ÞAKÍBÚÐ
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Hringhamar 19 (701) ÞAKÍbúð
221 Hafnarfjörður
135 m2
Fjölbýlishús
322
962 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin