BYR fasteignasala kynnir í einkasölu NESBAKKI 17 ÍBÚÐ 301, 740 Neskaupstaður.
Fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi. Húsið stendur við lítinn botnlanga í grónu hverfi á Neskaupstað.
Skipulag eignar: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi og gangur.
Í sameign: Sér geymsla, vagna- og hjólageymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri, fjórfaldur fataskápur frá IKEA, greinatafla.
Eldhús, nýleg Brúnás innrétting, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, borðkrókur (hilla og vínrekki í eldhúsi fylgja ekki).
Stofa og borðstofa, skápar og hillur fylgja ekki, útgengt er út á suður svalir frá stofu. Gerfigras á svalargólfi.
Herbergi I, hjónaherbergi, þrefaldur fataskápur frá IKEA.
Herbergi II, án fataskáps. Voru upprunalega tvö svefnherbergi.
Baðherbergi er upprunalegt, flísalagt í hólf og gólf, baðkar, salerni og vaskinnréting (máluð), tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni í alrými, forstofu, herbergjum og eldhúsi er harðparket sem flæðir inn í öll rými.
Í sameign er sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla og inngangur/anddyri.
Í geymslu er málað gólf, veggfastar hillur (fylgja).
PVC gluggar eru í öllum rýmum utan stofu, svalargluggar, þar eru timburgluggar.
Nýjar hurðar frá sameign inn í íbúðir í öllum stigaganginum.
Inni í íbúðinni, þá er búið að endurnýja gólfefni, hurðar og eldhúsinnréttingu.
Húsið Nesbakki 13 - 17 er þriggja hæða hús með þremur stigahúsum.
Húsið er steinsteypt byggt árið 1979, gaflar hússins eru klæddir. Sex íbúðir eru í hverjum stigagangi, tvær íbúðir eru á hverri hæð.
Þak er risþak klætt járni, þak eignarinnar hefur verið endurnýjað ásamt þakrennum og þakköntum.
Lóð er gróin, sameiginleg, bílastæðalóð framan við húsið er mallbikuð.
Lóðin er 2.875,0 m² leigulóð, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 26. júlí 1978, skjal nr. 428-N-0H1009/1978.
Lega og takmörk lóðar samkvæmt lóðarleigusamning, leigjendur norðan við lóðina megi ganga um merkt svæði og nýta til sinna nota,
sjá nánar lóðaleigusamning.
Tvö húsfélög eru starfandi í heildarhúsinu Húsfélagið Nesbakki 13-17, sjá nánar í söluyfirliti.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 216-9540. Nesbakki 17, Fjarðabyggð.
Stærð: Íbúð 92.4 m².
Brunabótamat: 45.900.000 kr.
Fasteignamat: 31.400.000 kr.
Byggingarár: 1980.
Byggingarefni: Steypa.
Eignarhald:
03 0 - Séreign. Rými 03 X Sameign allra 10.6 Brúttó m².
03 2 - Séreign. Rými 03.0105 Geymsla 7 Brúttó m². 03.0301 Íbúð á hæð 85.4 Brúttó m².