Fasteignaleitin
Skráð 29. júlí 2025
Deila eign
Deila

Stekkjarhvammur 2

SumarhúsNorðurland/Húsavík-641
49 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
23.800.000 kr.
Fermetraverð
485.714 kr./m2
Fasteignamat
19.400.000 kr.
Brunabótamat
25.500.000 kr.
Mynd af Hermann Aðalgeirsson
Hermann Aðalgeirsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1998
Garður
Fasteignanúmer
2237287
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
talið í lagi
Raflagnir
Talið í lagi
Frárennslislagnir
Talið í lagi
Gluggar / Gler
Upprunanlegt
Þak
Talið í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Lögeign kynnir eignina Stekkjarhvammur 2

Um er að ræða 49 M² sumarhús í frístundabyggð við Þverá í Reykjahreppi í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá Húsavík. Húsið að innan skiptist Forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi og svefnloft. 
Nánari Lýsing:

Komið er inn í parketlagða forstofu þar sem einnig er lúga upp á 4 M² geymsluloft, inn af forstofu tekur við hol sem tengir saman stofu og herbergisgang. Stofan er rúmgóð og nýtist bæði sem sjónvarpsstofa og borðstofa, stofan er í opnu rými með eldhúsinu. Eldhúsið er með viðarlitaðri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum, ísskáp og vask. Tvö svefnherbergi, eitt rúmgott svefnherbergi sem er með stórum fataskáp og svo er eitt minna svefnherbergi. Baðherbergið er með dúk á gólfi, sturtuklefa, vask, speglaskáp og tengi fyrir þvottavél. Við endan á herbergisgang er stigi upp á svefnloft sem er parketlagt og nokkuð rúmgott. 
Að utan: Rúmgott malarbílastæði er við hliðin á eigninni og svo timburpallur í kringum húsið með heitum pott. Útsýnið af pallinum er fallegt ásamt því að húsið er á rólegum stað. 
Annað:
-Ljósleiðari er kominn inn í hús en eftir að tengja
- 7200 M² lóð
-Lagnakjallari undir öllu húsinu

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lfs. í síma 865-7430 eða netfanginu hermann@logeign.is eða Hinrik Lund lfs. í síma 835-0070 eða netfanginu Hinrik@logeign.is

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
GötuheitiPóstnr.m2Verð
641
49.3
23,5
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin